Leikskólinn Garðasel
Leikskólinn Garðasel
Leikskólinn Garðasel

Leikskólakennari óskast til starfa

Heilsuleikskólinn Garðasel á Akranesi auglýsir eftir kennurum til starfa í janúar. Um er að ræða fullt starf eða annað eftir nánara samkomulagi.

Garðasel er Heilsuleikskóli og leggur áherslu á hreyfingu, heilsu og gæði í samskiptum. Við leitum að jákvæðu, duglegu og áhugasömu fólki sem tilbúið er að vinna á skemmtilegum vinnustað. Ef ekki fæst kennari til starfa kemur til greina að ráða leiðbeinanda til starfa. Í leikskólanum eru rúmlega 150 börn á sjö deildum.

Leikskólinn er í nýju og glæsilegu húsnæði þar sem m.a. starfsaðstaða, hljóðvist og lýsing er til fyrirmyndar.

Helstu verkefni og ábyrgð

Vinna að uppeldi og menntun barna samkvæmt starfslýsingu leikskólakennara eða leiðbeinenda í leikskóla. Starfið er unnið í samvinnu við leikskólakennara, deildarstjóra og skólastjórnendur.

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Leyfisbréf kennara- Kennaramenntun
  • Áhugi, reynsla og hæfni í starfi með börnum
  • Jákvæðni, lipurð og góð færni í samskiptum
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
  • Góð íslenskukunnátta skilyrði
  • 18 ára og eldri
  • Hreint sakavottorð
Auglýsing birt21. nóvember 2025
Umsóknarfrestur4. desember 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Asparskógar 25
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Hreint sakavottorðPathCreated with Sketch.KennariPathCreated with Sketch.Tóbakslaus
Starfsgreinar
Starfsmerkingar