Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær

Þroskaþjálfi - Hvaleyrarskóli

Hvaleyrarskóli óskar eftir að ráða þroskaþjálfa sem fyrst í Bjarg, deild fyrir nemendur í alþjóðlegri vernd.

Í Hvaleyrarskóla eru tæplega 400 nemendur í 1. til 10. bekk. Einkunnarorð skólans eru ábyrgð, kurteisi og samvinna og endurspeglast allt skólastarfið í þessum orðum. Í skólanum er unnið samkvæmt SMT-skólafærni sem þýðir að áhersla er lögð á að nálgast nemendur á jákvæðan hátt, gefa góðri hegðun meiri gaum og skapa þannig jákvæðan skólabrag. Hvaleyrarskóli er jafnframt heilsueflandi grunnskóli og vinnur eftir Olweusaráætluninni gegn einelti. Hvaleyrarskóli er skóli margbreytileikans þar sem lögð er rækt við fjölmenningu.

Skólinn vinnur samkvæmt hugmyndafræði SMT, Olweus, markvissar málörvunar og Byrjendalæsis.

Nánari upplýsingar um skólann má einnig finna á heimasíðunni http://www.hvaleyrarskoli.is.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Fjölbreytt nálgun í þjálfun og umsjón með nemendum í samvinnu við kennara, stoðþjónustu og foreldra
  • Að veita nemendum með sérþarfir þjálfun, leiðsögn og stuðning
  • Vinna með félagsfærni og aðlaga námefni og námsaðstæður
  • Vinna að gerð sjónræns skipulags fyrir nemendur
  • Vinna að gerð einstaklingsnámskrám í samstarfi við kennara og deildarstjóra
  • Stuðla að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og annað fagfólk
  • Taka þátt í stefnumótunarvinnu
  • Vinna að þróun skólastarfs í samstarfi við stjórnendur og samstarfsfólk með áherslu á teymisvinnu
  • Vinna samkvæmt stefnu skólans í SMT skólafærni sem ætlað er að skapa gott andrúmsloft í skólum og tryggja öryggi og velferð nemenda og starfsfólks
  • Önnur verkefni skv. starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Háskólamenntun á sviði þroskaþjálfunar og starfsleyfi sem slíkur (leyfisbréf fylgi umsókn)
  • Þekkingu og reynslu af vinnu með nemendum með fjölþættan vanda
  • Þekking á SMT æskilega
  • Lipurð í samskiptum, sveigjanleiki og samstarfshæfni
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Mjög góð íslenskukunnátta
  • Víðtæk tölvukunnátta
  • Áhugi á teymiskennslu og þverfaglegu samstarfi

Gerð er krafa um hreint sakavottorð við ráðningu.

Nánari upplýsingar um starfið veita Kristinn Guðlaugsson, skólastjóri, [email protected] í síma 664 5833, Friðþjófur Helgi Karlsson deildarstjóri, [email protected] í síma 863 6810 eða Vala Stefánsdóttir, aðstoðarskólastjóri, [email protected] í síma 868 6859. Sími skólans er 565 0200.

Ráðið er í stöðuna sem fyrst. Umsóknarfrestur er til og með 23. september næst komandi. Greinagóð ferilskrá fylgi umsókn.

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Þroskaþjálfafélags Íslands.

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.

Auglýsing birt10. september 2025
Umsóknarfrestur23. september 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Akurholt 1, 220 Hafnarfjörður
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar