

Sérkennari - Hraunvallaskóli
Hraunvallaskóli auglýsir eftir sérkennara út skólaárið 2025-2026
Skólinn hefur þá sérstöðu að innan veggja hans er rekinn bæði leik- og grunnskóli. Segja má að nemendur hefji skólagöngu sína átján mánaða í Hraunvallaskóla og ljúki henni við sextán ára aldur. Hraunvallaskóli starfar eftir hugmyndafræði opna skólans og er byggingin hönnuð með það í huga. Kennsla er miðuð við að mæta ólíkum þörfum einstaklinga sem læra að skipuleggja nám sitt sjálfir og meta árangur sinn. Í kennsluskipulagi er lögð áhersla á skipulag sem byggir á hópavinnu, þemanámi, einstaklingsvinnu, þrautalausnum, gagnrýnni hugsun og færni nemenda til að afla sér þekkingar og nýta sér nýjustu upplýsinga- og samskiptatækni í því skyni. Kennarar vinna saman í teymum í kennslustundum og við skipulagningu og undirbúning kennslunnar. Nemendur í sama árgangi eru í sameiginlegum umsjónarhópum með sameiginlega umsjónarkennara á sínum heimasvæðum.
Dyggðir Hraunvallaskóla eru vinátta – samvinna – ábyrgð.
Sérkennari er hluti af sérkennsluteymi skólans og vinnur í nánu samstarfi við umsjónarkennara að námi barna með sérþarfir.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Annast sérkennslu í skólanum.
- Vinnur að þróun skólastarfs í samstarfi við stjórnendur og samstarfsfólk
- Stuðlar að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og annað fagfólk
- Vinnur samkvæmt stefnu skólans í SMT skólafærni sem ætlað er að skapa gott andrúmsloft í skólum og tryggja öryggi og velferð nemenda og starfsfólks.
- Önnur verkefni skv. starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Leyfisbréf sem kennari (leyfisbréf fylgi umsókn)
- Framhaldsmenntun á sviði sérkennslufræða æskileg
- Reynsla af sérkennslu æskileg
- Áhugi á að starfa með börnum og ungmennum
- Lipurð í samskiptum, sveigjanleiki og samstarfshæfni
- Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Jákvæðni og áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi
- Stundvísi og samviskusemi
- Góð íslenskukunnátta
Gerð er krafa um hreint sakavottorð við ráðningu.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Lars Jóhann Imsland skólastjóri [email protected] og Guðbjörg Norðfjörð Elíasdóttir aðstoðarskólastjóri [email protected] eða í síma 590 2800.
Umsóknarfrestur er til 23. september 2025. Um er að ræða 80-100% starf
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ.
Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.

































