Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær

Forfallakennari - Öldutúnsskóli

Öldutúnsskóli auglýsir eftir forfallakennara til starfa í 50 – 80% starf.

Í Öldutúnsskóla eru um 600 nemendur í 1. - 10. bekk.

Í Öldutúnsskóla er lögð áhersla á skapandi og gefandi námsumhverfi þar sem allir aðilar leitast við að gera námið í senn áhugavert og skemmtilegt. Við leggjum áherslu á góðan starfsanda og fjölbreytta kennsluhætti. Rík áherslu er lögð á teymisvinnu.

Einkunnarorð skólans eru virðing, virkni og vellíðan og grundvallast starf skólans af þeim gildum. Skólinn vinnur samkvæmt hugmyndafræði SMT um jákvæða skólafærni.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Annast almenna forfallakennslu í samvinnu við skólastjórnendur og samstarfsfólk.
  • Stuðla að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og annað fagfólk
  • Vinna samkvæmt stefnu skólans

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Leyfisbréf til kennslu (leyfisbréf skal fylgja umsókn)
  • Áhugi og/eða reynsla af kennslu í grunnskóla.
  • Lipurð í samskiptum, sveigjanleiki og samstarfshæfni
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Jákvæðni og áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi
  • Stundvísi og samviskusemi
  • Mjög góð íslenskukunnátta

Skilyrði við ráðningu er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð.

Ef þetta er eitthvað sem vekur áhuga þinn hafðu samband við okkur.

Nánari upplýsingar veitir Margrét Sverrisdóttir skólastjóri, í síma 664-5894, [email protected] og Áslaug Hreiðarsdóttir aðstoðarskólastjóri, [email protected]

Umsóknarfrestur er til og með 23. september n.k.

Greinargóð ferilsskrá fylgi umsókn.

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.

Auglýsing birt9. september 2025
Umsóknarfrestur23. september 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Öldutún 9, 220 Hafnarfjörður
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar