

Þrif og umhirða / Housekeeping
*English below
Góð upplifun byggist á umhverfi sem er hreint, snyrtilegt og vel hugsað. Við leitum að ábyrgu og samviskusömu fólki sem hefur auga fyrir hreinlæti, góðri umgengni og umhverfi þar sem gestum líður vel.
Sem starfsmaður í umhirðu og þrifum gegnir þú mikilvægu hlutverki í daglegri upplifun gesta Reykjabaða. Þú sérð til þess að aðstaða fyrir gesti og starfsfólk sé hrein, snyrtileg og tilbúin fyrir gesti á hverjum degi. Auk þrifa og umhirðu sinnir þú einnig baðvörslu í búningsklefum og hjálpar til við að skapa notalegt og vel skipulagt umhverfi þar sem gestum líður vel. Starfið krefst nákvæmni, ábyrgðar og góðrar samvinnu við aðra í teyminu.
Þú verður hluti af teymi sem opnar og mótar nýjan áfangastað í íslenskri ferðaþjónustu.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Sinna daglegum þrifum og ræstingum á gestasvæðum, búningsklefum, salernum og öðrum sameiginlegum rýmum.
- Sinna þvotti og meðhöndlun á textíl.
- Tryggja að umhverfið sé hreint, snyrtilegt og aðlaðandi á öllum tímum.
- Sinna baðvörslu í búningsklefum og aðstoða gesti eftir þörfum.
- Fylgjast með aðstöðu og tilkynna um frávik, bilanir eða atriði sem þarfnast athygli.
- Fylgja verklagi og gæðakröfum fyrirtækisins varðandi hreinlæti, öryggi og umgengni.
- Vinna samkvæmt gildandi stefnum, starfsreglum og leiðbeiningum fyrirtækisins.
- Önnur tilfallandi verkefni.
Menntunar- og hæfniskröfur
- 18 ára eða eldri.
- Reynsla af ræstingum, þrifum eða sambærilegum störfum er kostur.
- Jákvætt viðmót og ábyrg vinnubrögð.
- Góð skipulagshæfni, nákvæmni og auga fyrir smáatriðum.
- Hæfni til að vinna sjálfstætt sem og í teymi.
- Góð líkamleg geta og geta til að vinna í virku starfsumhverfi.
- Góð enskukunnátta er kostur. Íslenska og önnur tungumál eru einnig kostur.
- Áhugi á að tileinka sér nýja þekkingu og taka virkan þátt í uppbyggingu teymisins.
Hjá Reykjaböðum trúum við því að góð upplifun byggist á litlu hlutunum: hreinum búningsklefa, snyrtilegu umhverfi og þeirri umhyggju sem felst í vel unnu verki. Þitt framlag hjálpar gestum að slaka á, njóta augnabliksins og upplifa Reykjaböð eins og þeim er ætlað að vera.
Um er að ræða framtíðarstörf í 100% starfshlutfalli á 2-2-3 vöktum. Einnig eru í boði tímabundin störf yfir sumartímann og hlutastörf aðra hvora helgi (fös-sun).
_________________________________________________________________________________________________
Housekeeping Attendant
A great guest experience is built on an environment that is clean, well-maintained, and thoughtfully cared for. We are looking for responsible and conscientious individuals who take pride in cleanliness, good housekeeping, and creating spaces where guests feel comfortable and at ease.
As a Housekeeping team member, you play an important role in the daily guest experience at Reykjaböð. You ensure that guest and staff facilities are clean, tidy, and ready to welcome guests every day. In addition to housekeeping duties, you will also assist with guest supervision in the changing rooms, helping to maintain a pleasant, organized, and welcoming environment. The role requires attention to detail, a strong sense of responsibility, and the ability to work well as part of a team.
You will be part of a team opening and shaping a new destination in Icelandic tourism.
Key Responsibilities
- Perform daily cleaning and housekeeping duties in guest areas, changing rooms, restrooms, and other shared spaces.
- Handle laundry and textile care.
- Ensure that all facilities and guest areas remain clean, tidy, and welcoming at all times.
- Assist with guest supervision in changing rooms and provide support to guests when needed.
- Monitor facilities and report any issues, defects, or maintenance concerns.
- Follow company procedures and quality standards related to cleanliness, safety, and housekeeping.
- Work in accordance with company policies, procedures, and guidelines.
- Carry out other duties as required.
Qualifications and Requirements
- Must be 18 years of age or older.
- Previous experience in housekeeping, cleaning, or a similar role is an advantage.
- Positive attitude and a responsible approach to work.
- Strong organizational skills, attention to detail, and pride in maintaining high standards.
- Ability to work independently as well as part of a team.
- Good physical fitness and the ability to work in an active environment.
- English language skills are an advantage. Icelandic and other languages are also an advantage.
- Eagerness to learn new skills and contribute to the growth and development of the team.
At Reykjaböð, we believe that great experiences are built on the little things: a clean changing room, a well-kept environment, and the care that goes into a job done well. Your contribution helps guests relax, enjoy the moment, and experience Reykjaböð as it was meant to be.
This is a permanent full-time position (100%) working a 2-2-3 shift schedule. Seasonal positions are also available during the summer months and part-time positions every other weekend (Fridays-Sundays).
Við leitum að einstaklingum sem geta hafið störf sem fyrst.
Sendu okkur upplýsingar um þig ásamt ferilskrá í gegnum umsóknargátt Alfreðs.
Unnið er úr umsóknum jafnóðum og þær berast.
Allir áhugasamir eru hvattir til að sækja um, óháð kyni og uppruna. Farið er með allar umsóknir og fyrirspurnir sem trúnaðarmál og þeim svarað að ráðningu lokinni.
We are seeking candidates who can begin work at the earliest opportunity.
Send us your application via Alfred, including your CV.
Applications will be reviewed as they are received.
We welcome applications from all qualified candidates, regardless of gender, background, or origin. All applications and inquiries will be treated as confidential and will be responded to once the recruitment process is completed.
Reykjaböð er nýtt náttúrulón og heilsulind sem opnar sumarið 2026 við rætur Reykjadals í Hveragerði. Við bjóðum upp á fjölbreytt upplifunarsvæði þar sem hver og einn finnur sitt athvarf frá öllum æsingnum. Hér getur þú notið augnabliksins, endurnærst í heitum lindum og fundið orkuna sem býr í íslenskri náttúru, hvort sem það er á björtum sumarkvöldum eða undir dansandi norðurljósum. Okkar markmið er að skapa eftirminnilega upplifun í einstöku umhverfi þar sem stórbrotin náttúrufegurð, kraumandi jarðhiti, íslensk menning og vellíðan renna saman.
Reykjaböð Hot Springs is a new natural hot spring and wellness retreat opening in summer 2026 at the roots of Reykjadalur in Hveragerði. We offer a range of experience areas where each guest can find their own sanctuary from the noise of everyday life. Here, you can slow down and be present in the moment, rejuvenate yourself in warm springs, and feel the energy that lives in Icelandic nature, whether on bright summer evenings or beneath dancing northern lights. We aim to create a memorable experience in a unique setting where dramatic natural beauty, living geothermal heat, Icelandic culture, and wellbeing come together.
Enska
Íslenska










