
Grindavíkurbær
Í Grindavík er samhent og metnaðarfullt samfélag þar sem nálægð og samvinna einkenna daglegt líf. Á sama tíma stendur yfir uppbygging sem felur í sér einstakt tækifæri til að hafa áhrif og taka þátt í mótun framtíðar samfélagsins.
Hjá Grindavíkurbæ starfar öflugur hópur fólks þar sem fagmennska, samvinna og lausnamiðuð hugsun eru í forgrunni. Lögð er rík áhersla á að veita framúrskarandi þjónustu og skapa umhverfi þar sem starfsfólk fær tækifæri til að vaxa og hafa raunveruleg áhrif.

Starfsfólk í íþróttamannvirki Grindavíkurbæjar
Íþróttamannvirki Grindavíkurbæjar auglýsa eftir öflugu og þjónustulunduðu starfsfólki í störf sundlaugarvarða. Um er að ræða fjögur störf í vaktavinnu, og er starfshlutfall allt að 80%. Gert ráð fyrir ráðningu frá 1. ágúst 2026.
Umsækjendur þurfa að hafa náð 20 ára aldri og geta staðist þolpróf/hæfnispróf sundlaugarvarða samkvæmt reglugerð um hollustuhætti á sund og baðstöðum.
Við leitum að starfsfólki sem getur unnið vel í síbreytilegu umhverfi og hefur mikla og ríka öryggisvitund. Mikilvægt er að starfsfólk hafi hag heildarinnar að leiðarljósi og vilja til að taka þátt í næstu skrefum í endurreisn bæjarins.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Öryggisgæsla við sundlaug og sundlaugarsvæði
- Klefavarsla fyrir íþróttahús og sundlaug
- Almenn þrif
- Afgreiðsla og þjónusta við viðskiptavini og notendur íþróttahúss/sundlaugar
- Vinna á kappleikjum og öðrum viðburðum
- Önnur tilfallandi verkefni við íþróttamannvirki
Menntunar- og hæfniskröfur
- Mikil öryggis vitund
- Uppbyggileg og árangursrík samskiptahæfni
- Vaxtarhugarfar og lausnamiðuð nálgun
- Hæfni til að vinna sjálfstætt og í hóp
- Góður liðsmaður sem hefur hag heildarinnar að leiðarljósi
- Ábyrgðarkennd og jákvætt viðmót
- Góð íslenskukunnátta, enskukunnátta æskileg
- Gerð er krafa að viðkomandi standist hæfnispróf samkvæmt reglugerð nr. 814/2010 um hollustuhætti á sund- og baðstöðum.
- Hafa náð 20 ára aldri
Auglýsing birt22. maí 2026
Umsóknarfrestur7. júní 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaValkvætt
Staðsetning
Víkurbraut 62, 240 Grindavík
Starfstegund
Hæfni
Sund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (4)

