

Heilsugæslan í Vík í Mýrdal leitar að starfsmanni
Leitað er að öflugum, þjónustuliprum og ábyrgum einstaklingi í fjölbreytt starf. Um er að ræða nýtt sameinað starf móttökuritara og starfsmanns í þrifum þar sem lykilhlutverkið er að tryggja góða þjónustu við skjólstæðinga ásamt því að tryggja snyrtilegt og öruggt umhverfi.
Á heilsugæslunni í Vík sameinast náttúrufegurð og samhent samfélag sem gerir daglegt líf og starf einstakt, á heilsugæslunni vinnur lítið teymi þétt og vel saman. Starfsmaður fær tækifæri til að hafa áhrif og taka þátt í daglegri starfsemi heilsugæslunnar í fjölbreyttu og lifandi starfi.
-
Móttaka skjólstæðinga
-
Símsvörun
-
Skráningar og umsýsla
-
Almenn skrifstofu¿ og þjónustustörf
-
Dagleg þrif á húsnæði heilsugæslunnar
-
Áfylling á rekstrarvörum og eftirlit með aðstöðu
-
Önnur störf sem falin eru af yfirmanni
-
Almenn tölvukunnátta er skilyrði
-
Góð íslensku- og enskukunnátta er skilyrði
-
Framúrskarandi þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum
-
Skipulagshæfni og sjálfstæð vinnubrögð
-
Reynsla af þjónustustörfum kostur
-
Áreiðanleiki og jákvætt viðmót
Enska
Íslenska










