Akraneskaupstaður
Akraneskaupstaður
Akraneskaupstaður

Þjónustufulltrúi í þjónustu- og þróunardeild bæjarskrifstofu

Við leitum að þjónustuliprum og skipulögðum einstaklingi í starf þjónustufulltrúa í þjónustuveri sveitarfélagsins. Starfið felur í sér fjölbreytt samskipti við íbúa og starfsfólk, afgreiðslu erinda, stuðning við stafræna þjónustu og þátttöku í þróun þjónustuferla.

Viðkomandi þarf að vera með góða samskiptahæfni, þjónustulund og áhuga á stafrænum lausnum og Microsoft 365 umhverfi.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Almenn afgreiðsla og þjónusta við íbúa og gesti
  • Móttaka og skráning erinda í þjónustu- og málakerfum
  • Símsvörun og samskipti í tölvupósti
  • Upplýsingagjöf um þjónustu sveitarfélagsins og leiðbeiningar til íbúa
  • Aðstoð við notkun rafrænna umsókna og sjálfsafgreiðslulausna
  • Stuðningur við rafræna þjónustu og stafræna innleiðingu
  • Skjalavinnsla, skráning og meðferð gagna samkvæmt verklagi sveitarfélagsins
  • Stuðningur við fundi, bókanir og önnur almenn skrifstofuverkefni
  • Samvinna við önnur svið sveitarfélagsins um þjónustu og ferla
  • Þátttaka í umbótaverkefnum og þróun stafrænnar þjónustu
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Stúdentspróf eða önnur sambærileg menntun sem nýtist í starfi
  • Reynsla af þjónustu-, afgreiðslu- eða skrifstofustörfum æskileg
  • Góð almenn tölvukunnátta og hæfni til að tileinka sér ný upplýsingakerfi
  • Þekking eða reynsla af Microsoft 365 umhverfi, t.d. Outlook, Teams, SharePoint og Office forritum
  • Reynsla af málaskrá, skjalastjórnun eða þjónustukerfum er kostur
  • Góð íslenskukunnátta í töluðu og rituðu máli
  • Enskukunnátta æskileg
  • Hæfni í mannlegum samskiptum og sterk þjónustulund
  • Frumkvæði, skipulagshæfni og sjálfstæð vinnubrögð
  • Hæfni til að vinna í hröðu og síbreytilegu umhverfi
Fríðindi í starfi
  • Góður og sveigjanlegur vinnustaður
  • 36 stunda vinnuvika
  • Heilsueflingarstyrkur
Auglýsing birt11. júní 2026
Umsóknarfrestur23. júní 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Dalbraut 4, 300 Akranes
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar