
Þjálfari hjá Dale Carnegie
Ertu opin, jákvæð og sveigjanleg manneskja sem hefur mikla trú á fólki, einlægan áhuga á mannlegum þáttum lífsins og brennandi áhuga á því að stuðla að vexti annarra? Hefur þú reynslu úr viðskiptalífinu sem þú getur miðlað til annarra til að hjálpa þeim að vaxa í starfi? Þá er þetta tækifæri fyrir þig!
Við leitum að einstaklingi sem er fyrirmynd í hegðun og mannlegum samskiptum og sem sýnir í verki hvernig traust, virðing og jákvæðni skapa umhverfi þar sem fólk nær árangri. Þú munt vinna með fólki sem vill taka skref í átt að persónulegum og faglegum vexti.
Við bjóðum hlutastarf sem verktaki sem hentar vel með öðru starfi. Starfið krefst skuldbindingar í tíma og þess að þú sért tilbúin(n) að fjárfesta í námi til að öðlast alþjóðleg þjálfunarréttindi hjá Dale Carnegie. Þú munt vera þjálfari á námskeiðum haldin á vegum Dale Carnegie, bæði opnum almennum námskeiðinum og sérsniðnum námskeiðum sem eru haldin í fyrirtækjum.
- Opin og jákvæð í samskiptum
- Sveigjanleg og lausnamiðuð
- Mikil trú á fólki og einlægur áhugi á mannlegum þáttum lífsins
- Reynsla úr viðskiptalífinu sem nýtist til að styðja fólk í vexti og starfsþróun
- Fyrirmynd í hegðun og samskiptum
- Háskólamenntun er kostur
Íslenska
Enska










