

Sundlaugarvörður Dalslaug
Menningar- og íþróttasvið Reykjavíkur óskar eftir starfsfólki til starfa í Dalslaug. Um er að ræða 100% starf í vaktavinnu þar sem unnar eru morgun-, kvöld- og helgarvaktir.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Umsjón með öryggi sundgesta í og við laug
- Taka á móti gestum og veita upplýsingar um þjónustuna
- Leiðbeina gestum eftir því sem við á
- Eftirfylgni með umgengnisreglum
- Eftirlit með gæðum laugarvatns
- Umsjón með hreinlæti í og við laug
- Sjá til þess að húsnæði og sundlaugarsvæði séu hrein og snyrtileg
Hæfniskröfur
- Hreint sakavottorð
- Umsækjendur þurfa að hafa náð 18 ára aldri
- Standast hæfnispróf laugarvarða skv. reglugerð fyrir sundstaði
- Stundvísi og áreiðanleiki
- Þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum
- Íslenskukunnátta á stigi A2–B1 samkvæmt evrópska tungumálarammanum
- Góð almenn menntun og reynsla sem nýtist í starfi
Launakjör
Laun eru samkvæmt samningi Reykjavíkurborgar og Sameykis.
Umsókn
- Umsóknarfrestur er til og með 3. desember 2025.
- Vinsamlegast látið ferilskrá fylgja með í viðhengi.
Upplýsingar
Nánari upplýsingar veitir Ellen Elísabet Bergsdóttir, forstöðukona Netfang: [email protected]
Auglýsing birt21. nóvember 2025
Umsóknarfrestur3. desember 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Úlfarsbraut 122-124, 113 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (2)
Sambærileg störf (12)

Egilsstaðir: Framtíðarstarf í timbursölu
Húsasmiðjan

Jólagæsla
Securitas

Viltu vinna fyrir mikilvægasta fólkið?
Skólamatur

Fullt starf í móttöku Hårklinikken
Hårklinikken

Afgreiðslustarf
Bæjarbakarí

Afgreiðslustarf í verslun Smáralind - Hlutastarf
Blekhylki-Símaveski

Augastaður - sölufulltrúi í verslun
Augastaður

Automotive Mechanic at Titan1 — Join Our Workshop Team!
TITAN1

Söluráðgjafi hjá Módern
Módern

Lager Útideild
Vatnsvirkinn ehf

Verslunarstarf í Reykjanesbæ
Penninn Eymundsson

Vaktstjóri Breiðholtslaug
Reykjavíkurborg