Colas Ísland ehf.
Colas Ísland ehf.
Colas Ísland ehf.

Sumarstarf í móttöku og bókhaldi

Colas Ísland leitar að jákvæðum og þjónustulunduðum einstaklingi til að starfa með okkur í sumar í móttöku fyrirtækisins og bókhaldi. Við leitum að líflegum og áreiðanlegum einstaklingi sem hefur áhuga á þjónustu, samvinnu og tölvuvinnu ásamt vilja til að læra nýja hluti í leiðinni. Starfið hentar vel einstaklingi í háskólanámi.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Móttaka gesta, starfsmanna og símsvörun
  • Umsjón með almennum póst- og tölvupóstsendingum
  • Aðstoð við skjalavistun og dagleg skrifstofustörf
  • Innsláttur og stoðvinna í bókhaldi (t.d. skráning reikninga, samantekt gagna og fleira)
  • Samskipti við viðskiptavini, birgja og samstarfsfólk
  • Ýmis önnur tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Stúdentspróf (eða sambærileg menntun)
  • Jákvæðni, þjónustulund og fagleg framkoma
  • Góð íslensku- og enskukunnátta
  • Ökuréttindi
  • Góð tölvufærni og nákvæm vinnubrögð
  • Vilji til að takast á við fjölbreytt verkefni og læra nýja hluti
  • Góð samskiptahæfni og hæfni til að vinna bæði sjálfstætt og í teymi
  • Reynsla í þjónustustörfum eða bókhaldi er kostur, en ekki skilyrði
Auglýsing birt13. mars 2026
Umsóknarfrestur24. mars 2026
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Gullhella 1, 221 Hafnarfjörður
Starfstegund
Hentugt fyrir
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar