

Sumarstörf í bókhaldi og innheimtu hjá Festi hf.
Festi leitar að talnaglöggum og metnaðarfullum háskólanemum í sumarstörf á fjármálasviði félagsins. Um er að ræða fullt starf yfir sumarið, með möguleika á hlutastarfi samhliða námi í framhaldinu.
Helstu verkefni:
-
Skráning og afstemmingu fjárhagsupplýsinga
-
Móttaka og skráning reikninga
-
Dagleg innheimtustörf
-
Samskipti við viðskiptamenn og þjónustuaðila
-
Almenn aðstoð við bókhald og skjalaumsýslu
-
Önnur tilfallandi verkefni á fjármálasviði
Hæfniskröfur:
-
Háskólanemi í viðskiptafræði eða öðru námi sem nýtist í starfi
-
Góð færni í Excel og almenn tölvukunnátta.
-
Vilji til að læra og áhugi á fjármálum
-
Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
-
Reynsla af bókhaldi eða bókhaldskerfum er kostur
Starfsfólki er veittur sveigjanleiki í starfi og lögð er áhersla á jafnvægi milli vinnu og einkalífs. Velferð starfsfólks er í fyrirrúmi og er ýmis konar heilsueflandi þjónusta í boði í velferðarpakka félagsins. Starfsfólk fær góð kjör á vörum og þjónustu hjá ELKO, Krónunni, Lyfju og N1.
Nánari upplýsingar veitir Hildur Þórisdóttir, mannauðsstjóri, [email protected].
Íslenska










