Deloitte
Deloitte
Deloitte

Við erum að ráða í móttökuna hjá Deloitte

Við leitum að aðila sem nýtur þess að vinna með fólki og leggur sig fram um að skapa jákvætt andrúmsloft fyrir viðskiptavini og samstarfsfólk.

Starfið er fjölbreytt þar sem móttakan gegnir lykilhlutverki í daglegri starfsemi okkar.

Hlýlegt, faglegt og traustvekjandi viðmót er því mikilvægur þáttur í starfinu sem reynir á samskiptahæfni, skipulag og lausnamiðaða nálgun

Um teymið  

Móttakan tilheyrir Rekstrarsviði sem samanstendur að auki af viðskipta- og markaðstengslum, tölvudeild og þjónustudeild. Bakgrunnur fólksins okkar er m.a. úr viðskiptafræði, kerfisstjórnun, sálfræði, lögfræði og fjármálum.

Starfsþróun  

Við trúum því að það sé ávallt rými til að læra. Það kann enginn allt frá fyrsta degi. Þú færð viðeigandi þjálfun og munt vaxa með teymunum okkar. Þú lærir mikið á þeim fjölbreyttu verkefnum sem þú tekur að þér.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Móttaka viðskiptavina og annarra gesta
  • Almenn afgreiðsla og símsvörun
  • Ýmiskonar umsýsla við starfsmannabeiðnir
  • Þátttaka í sameiginlegum verkefnum innanhúss
  • Ýmis almenn skrifstofustörf.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Rík þjónustulund og mjög góð færni í mannlegum samskiptum
  • Reynsla af sambærilegu starfi er æskileg
  • Nákvæm og vönduð vinnubrögð
  • Hæfni til að vinna bæði sjálfstætt og í teymi
  • Sveigjanleiki og geta til að takast á við fjölbreytt verkefni
  • Góð íslensku- og enskukunnátta, bæði í rituðu og töluðu máli
  • Góð almenn tölvukunnátta
Fríðindi í starfi

Að auki bjóðum við upp á:  

  • Frábært mötuneyti með niðurgreiddum morgunmat og hádegismat. 
  • Veglegan líkamsræktarstyrk, virkt starfsmannafélag og gott félagslíf 
  • Góðan aðbúnað í skrifstofuhúsnæði okkar að Dalvegi 30  
  • Sjálfboðastarf til áhrifa – launaður dagur til að sinna sjálfbærniverkefnum 
Auglýsing birt11. mars 2026
Umsóknarfrestur22. mars 2026
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Dalvegur 30, 201 Kópavogur
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.ÁreiðanleikiPathCreated with Sketch.FagmennskaPathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.Hreint sakavottorðPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.ReyklausPathCreated with Sketch.Samskipti í símaPathCreated with Sketch.Samskipti með tölvupóstiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.SnyrtimennskaPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar