Nói Síríus
Nói Síríus
Nói Síríus

Starfsmaður í vöruhúsum og dreifingu

Vilt þú starfa með sætustu vörumerkjum landsins?

Nói Síríus leitar að metnaðarfullum og árangursdrifnum einstaklingi með ríka þjónustulund til að ganga til liðs við teymið okkar í Hesthálsi 2-4, Reykjavík. Sem starfsmaður í vöruhúsum munt þú gegna mikilvægu hlutverki í daglegum rekstri. Ábyrgð þín mun fela í sér móttöku og afgreiðslu vara, birgðarstjórnun og viðhalda öruggu og skipulögðu vinnusvæði.

Vinnutími er frá 8-16 alla virka daga og frá 8-15 á föstudögum.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Móttaka aðfanga og fullunninna vara, bæði erlendis frá og innanlands
  • Rétt meðhöndlun og geymsla aðfanga og fullunninna vara
  • Eftirlit með birgðastöðu aðfanga og fullunninna vara
  • Þátttaka í birgðatalningum
  • Sjá um að tæma gáma með vörum og aðföngum
  • Sinna almennum vöruhússtörfum eins og tiltekt á pöntunum til innri og ytri viðskiptavina 
  • Önnur tilfallandi verkefni innan vöruhúss og aðfangalagers
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Hreint sakavottorð er skilyrði
  • Lyftarapróf er skilyrði
  • Stundvísi og áreiðanleiki í starfi
  • Geta til að vinna bæði sjálfstætt og í teymi
  • Góð öryggisvitund og ábyrg vinnubrögð
  • Góð færni í íslensku og/eða ensku
  • Reynsla af störfum í vöruhúsi, vörudreifingu eða innkaupum er kostur
  • Góðir samskiptahæfileikar og rík þjónustulund
  • Frumkvæði, fagmennska, sjálfstæði og öguð vinnubrögð
Fríðindi í starfi
  • Niðurgreiddur morgun- og hádegismatur
  • Íþróttastyrkur
  • Heilsufarsskoðun og velferðarþjónusta frá utanaðkomandi fagaðila
  • Ýmsir viðburðir á vegum fyrirtækisins
  • Virkt starfsmannafélag
  • Golfklúbbur
Auglýsing birt30. apríl 2026
Umsóknarfrestur17. maí 2026
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Grunnfærni
Staðsetning
Hestháls 2-4, 110 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.LagerstörfPathCreated with Sketch.Líkamlegt hreystiPathCreated with Sketch.SamviskusemiPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.Stundvísi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar