

Aðstoðarmanneskja í eldhús Sögu hjá Félagsstofnun Stúdenta
Veitingasala Félagsstofnunar Stúdenta sér um veitingarekstur á háskólasvæðinu undir merkinu Háma og Kaffistofur Stúdenta.
Félagsstofnun Stúdenta leitar að aðstoðarmanneskju til starfa í eldhúsi Hámu sem staðsett er á Sögu. Viðkomandi sér um að aðstoða matreiðslumann við undirbúning, matseld og framreiðslu matar í eldhúsi Sögu. Starfið krefst að farið sé eftir reglum um matvælaöryggi og hreinlæti en unnið er samkvæmt HACCP gæðakerfi.
Um 100% starf er að ræða og æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf í byrjun ágúst.
Vinnutími er frá 7-15 alla virka daga.
Eldhúsið á Sögu er lokað í júlí ár hvert.
- Aðstoða matreiðslumann við undirbúning, matreiðslu og framreiðslu máltíða samkvæmt matseðli.
- Fylgja reglum heilbrigðiseftirlits um matvælaöryggi og hreinlæti og vinna samkvæmt HACCP gæðakerfi.
- Tryggja að eldhús og vinnslurými séu ávallt hrein, snyrtileg og vel skipulögð.
- Sinna innkaupum á hráefni, móttöku vara og frágangi birgða.
- Aðstoða við afgreiðslu og þjónustu við viðskiptavini.
- Taka þátt í öðrum tilfallandi verkefnum eftir þörfum.
- Matartæknir eða önnur menntun sem nýtist í starfi
- Reynsla af starfi í eldhúsi, mötuneyti eða sambærilegu starfi er kostur
- Áhugi á matseld
- Þekking á matvælaöryggi, hreinlæti og HACCP verklagi
- Góð skipulagshæfni og sjálfstæð vinnubrögð
- Ábyrgð, nákvæmni og samviskusemi
- Góð samskiptahæfni og þjónustulund
- Stundvísi og reglusemi
- Hreint sakavottorð
Starfsfólk FS nýtur ýmissa fríðinda í formi íþróttastyrks og afslátta hjá Bóksölu Stúdenta, Stúdentakjallaranum og Hámu.
FS er með virkt starfsmannafélag sem skipuleggur ýmsa viðburðir, þar á meðal árshátíðarferðir erlendis annað hvert ár.
Íslenska
Enska










