Félagsstofnun stúdenta
Félagsstofnun stúdenta
Félagsstofnun stúdenta

Matreiðslumaður í eldhúsi Sögu hjá Félagsstofnun Stúdenta

Veitingasala Félagsstofnunar Stúdenta sér um veitingarekstur á háskólasvæðinu undir merkinu Háma og Kaffistofur Stúdenta.

Félagsstofnun Stúdenta leitar að matreiðslumanni til að starfa í eldhúsi Hámu sem staðsett er á Sögu. Matreiðslumaðurinn sér um að halda utan um eldhúsið á Sögu og ber ábyrgð á því að undirbúa, elda og framreiða mat í samvinnu við yfirkokk Hámu og annað starfsfólk eldhúss Sögu.

Matreiðslumaður í eldhúsi Sögu sér um að framleiða samkvæmt söluspám og fyrirmælum yfirkokks.

Matreiðslumaður í eldhúsi Sögu sér til þess að vinnslurými sé snyrtilegt og unnið sé eftir lögum og reglum Heilbrigðiseftirlitsins og í samræmi við HACCP gæðakerfi.

​Vinnutími​ er frá 7-15 alla virka daga.

Æskilegt að viðkomandi geti hafið störf í byrjun ágúst.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Þátttaka í gerð heilsusamlegs, fjölbreytts og ríkulegs matseðils í samstarfi við yfirkokk Hámu.
  • Undirbúningur, matseld og framreiðsla á heitum mat og öðrum réttum samkvæmt matseðli.
  • Umsjón með daglegri starfsemi í eldhúsi Sögu, þar með talið pöntunum, áfyllingum,  matseld, framreiðslu, frágangi og þjónustu.
  • Ábyrgð á að vinnusvæði sé ávallt hreint, snyrtilegt og vel skipulagt.
  • Tryggja að unnið sé samkvæmt reglum heilbrigðiseftirlits og í samræmi við HACCP gæðakerfi.
  • Önnur tilfallandi verkefni eftir þörfum.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Matreiðslumenntun eða önnur sambærileg menntun
  • Reynsla af því að starfa í eldhúsi/mötuneyti er skilyrði
  • Rík þjónustulund
  • Færni í mannlegum samskiptum
  • Drifkraftur og röggsemi
  • Sjálfstæð vinnubrögð
  • Stundvísi
  • Reglusemi
  • Hreint sakavottorð
Fríðindi í starfi

Starfsfólk FS nýtur ýmissa fríðinda í formi þróttastyrks og afslátta hjá Bóksölu stúdenta, Stúdentakjallaranum og Hámu. 

FS er með virkt starfsmannafélag sem skipuleggur viðburði, þar á meðal árshátíðarferðir erlendis annað hvert ár.

Auglýsing birt29. apríl 2026
Umsóknarfrestur15. maí 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Hagatorg Hótel Saga , 107 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.ÁreiðanleikiPathCreated with Sketch.EldhússtörfPathCreated with Sketch.FramreiðslaPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögð
Starfsgreinar
Starfsmerkingar