

Matráður óskast í Dal
Leikskólinn Dalur óskar eftir að ráða metnaðarfullan og drífandi matráð í 80 % starf. Starfið felur í sér ábyrgð á eldhúsi leikskólans og mikilvægt er að viðkomandi hafi áhuga á að skapa bragðgóðan og næringarríkan mat.
Leikskólinn Dalur hóf starfsemi sína 11. maí 1998. Dalur er fjögurra deilda leikskóli fyrir börn á aldrinum 1 - 5 ára.
Leikskólinn Dalur leggur megináherslu á gæði í samskiptum til að tryggja öryggi og vellíðan barna í leikskólanum. Samskipti er grundvallarþáttur í öllu starfi leikskólans. Einkunnarorð leikskólans eru Virðing – ábyrgð – sjálfstæði.
Það eru spennandi tímar framundan í leikskólum Kópavogs þar sem starfsumhverfi kennara og barna er í forgrunni eins og til dæmis full vinnustytting og er hluti af henni nýtt í vetrar-, páska- og jólafrí. Sjá nánar hér
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Heimasíða leikskólans er http:dalur.kopavogur.is
- Framleiðir holla og næringarríka fæðu fyrir börnin.
- Framleiðir mat fyrir börn með fæðuofnæmi/óþol.
- Vinnur samkvæmt því skipulagi sem leikskólastjóri ákveður.
- Hefur yfirumsjón með störfum aðstoðarmatráðs.
- Mikilvægt er að eiga gott samstarf við börn og annað starfsfólk leikskólans.
- Sinnir þeim verkefnum er varðar eldhús, þvottahús sem og kaffistofu sem yfirmaður felur honum.
- Nám í matvælafræði.
- Þekking á framreiðslu og bakstri.
- Sjálfstæði, skipulag og metnaður í vinnubrögðum.
- Hreinlæti og snyrtimennska.
- Þekking og meðvitund um næringargildi og hollustu matvæla.
- Þekking á matargerð fyrir börn með bráðaofnæmi og óþol.
- Stundvísi, sveigjanleiki og jákvæðni.
- Góð samskiptahæfni.
- Gott vald á íslensku er skilyrði.
Íslenska










