
Álfhólsskóli
Álfhólsskóli er heildstæðu grunnskóli með nemendur í 1. - 10. bekk. Innan skólans er stórt alþjóðanámsver og sérdeild fyrir einhverfa nemendur. Skólinn er starfrækur í tveimur húsum, í Digranesi, Álfhólsvegi 100 og Hjalla, Álfhólsvegi 120. Íþróttir eru kenndar í Íþróttahúsinu Digranesi og sund í Sundlaug Kópavogs.
Í Álfhólsskóla er skapandi starf með fjölbreyttum kennsluháttum og nám við hæfi hvers og eins óháð menningarlegum bakgrunni. Skólinn leggur áherslu á velferð nemandans og að hver og einn nái að eflast og þroskast út frá eigin forsendum.
Álfhólsskóli leggur áherslu á gott og náið samstarfs við foreldra um velferð nemenda. Hlutverk Álfhólsskóla er að búa nemendur undir þátttöku í lýðræðissamfélagi í námsumhverfi sem stuðlar að sjálfstæði og þroska einstaklingsins.
Álfhólsskóli hefur þrjú gildi að leiðarljósi en þau eru menntun, sjálfstæði og ánægja.

Skólaliði og frístundaleiðbeinandi í Álfhólsskóla
Í Álfhólsskóla eru um 570 nemendur í 1.-10. bekk og um 130 starfsmenn. Skólinn byggir á langri sögu um framsækið og árangursríkt skólastarf. Starfið einkennist af fjölbreyttum kennsluháttum, áherslu á læsi, teymiskennslu og leiðsagnarnám. Allir nemendur skólans eru með spjaldtölvur. Álfhólsskóli er fjölmenningarlegur skóli sem leggur áherslu á inngildingu allra nemenda. Í skólanum eru starfrækt námsver fyrir nemendur með einhverfu. Álfhólsskóli er í innleiðingarferli sem réttindaskóli Unicef. Skólinn hefur mótað eigin skólamenningaráætlun ,,Öll sem eitt". Skólinn er jafnframt Grænfánaskóli og Heilsueflandi skóli.
Einkunnarorð skólans eru : menntun - sjálfstæði - ánægja.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Aðstoða nemendur í matsal skólans
- Eftirlit með samskiptum nemenda á starfstíma skólans
- Gæsla nemenda
- Ræstingar
Menntunar- og hæfniskröfur
- Hæfni í mannlegum samskiptum, þolinmæði og umburðarlyndi
- Viðkomandi þarf að vera skipulagður, sýna sjálfstæði og frumkvæði í starfi
- Stundvísi, heiðarleiki og áreiðanleiki
- Góð íslenskukunnátta
Fríðindi í starfi
Starfsfólk Kópavogsbæjar fær frían aðgang að sundlaugum bæjarins.
Auglýsing birt24. apríl 2026
Umsóknarfrestur8. maí 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Álfhólsvegur 120, 200 Kópavogur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (3)
Sambærileg störf (12)

Kennarar - Skarðshlíðarleikskóli
Hafnarfjarðarbær

Sumarstarf í Vík
Arion banki

Apótekarinn Vík - Sala og þjónusta
Apótekarinn

Sölu- og þjónusturáðgjafi - fullt starf - Flügger Akureyri 🎨
Flügger Litir

Apótekarinn Vík - Umsjón útibús
Apótekarinn

Afgreiðslu- og lagerstarf og útkeyrsla. Sumar eða framtíðarstarf.
Kraftar og Afl. Motul á Íslandi.

Gæludýr.is AKUREYRI
Waterfront ehf

Viltu grilla með okkur?
Hagavagninn

Lyfja Patreksfirði - þjónusta og ráðgjöf
Lyfja

Starfsmaður í íþróttamannvirki
Skautahöllin Akureyri

ACCOMMODATION MANAGER - HOTEL
Hótel Dyrhólaey

Skólastjóri Útilífsskóla Landnema
Skátafélagið Landnemar