
Kópavogsbær
Kópavogur er næststærsta sveitarfélag landsins með yfir 40.000 íbúa. Kópavogsbær er einn af stærstu vinnuveitendum landsins en hjá sveitarfélaginu starfa að jafnaði um 2.700 einstaklingar á fjölbreyttum starfstöðum um allan bæ. Starfsfólki fjölgar um tæplega 2.000 manns á sumrin þegar sumastarfsmenn mæta til starfa og Vinnuskólinn hefur störf. Starfsfólk Kópavogsbæjar sinnir margvíslegum verkefnum sem miða að því að veita íbúum bæjarins sem allra bestu þjónustu og tryggja velferð þeirra um leið.
Hjá Kópavogsbæ eru þrjú fagsvið, menntasvið, umhverfissvið og velferðarsvið og fjórar skrifstofur sem starfa þvert á sviðin, skrifstofa umbóta og þróunar, skrifstofa þjónustu, skrifstofa mannauðs- og kjaramála og skrifstofa áhættu- og fjárstýringar. Öll störf hjá bænum falla undir eitt af þessum sviðum eða skrifstofum.
Mannauðsstefna Kópavogsbæjar byggir á gildum Kópavogs en þau eru framsækni, virðing, heiðarleiki og umhyggja. Kópavogsbær hefur það einnig að markmiði að vera vinnustaður þar sem öll hafa jöfn tækifæri í starfi. Hjá Kópavogsbæ er tekið mið af jafnréttisáætlun en hægt er að lesa sér til um bæði mannauðs- og jafnlaunastefnu bæjarins hér til hliðar. Starfsfólk Kópavogsbæjar hefur einnig fríðindi en fyrir starfsfólk er í boði að fá líkamsræktarstyrk, frítt í sund og víða er mötuneyti.
Kópavogsbær hefur það að leiðarljósi að vera eftirsóknarverður vinnustaður sem styður við heilsu, öryggi og vellíðan starfsfólks. Lögð er áhersla á að taka vel á móti starfsfólki og veita því markvissa þjálfun þannig að það nái góðum tökum á starfinu og líði vel í vinnunni. Mikil áhersla er lögð á gott samstarf þvert á deildir og svið bæjarins, því saman myndar starfsfólk sterka heild þar sem markmiðið er að fjölbreytt þekking, hæfni og reynsla nýtist sem best.
Kópavogsbær vill fá til liðs við sig öflugt og metnaðarfullt fólk sem er tilbúið að gera góðan bæ enn betri.

Starfsmaður í íþróttamannvirkjum - helgarstarf
Íþróttamannvirkin við Digranes og í Furugrund auglýsa laust til umsóknar helgarstarf fyrir 20 ára og eldri.
Í starfinu felst m.a. þjónusta og samskipti við iðkendur og notendur ásamt þrifum, öryggisgæslu og klefavörslu.
Unnið er aðra hvora helgi. Vinnutími fer eftir opnunartíma íþróttahúsanna og er ýmist kl. 8:00-15:00 eða kl. 15:00-22:00 á laugardögum og sunnudögum, eftir þörfum.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Taka vel á móti gestum íþróttahússins, aðstoða þá og leiðbeina
- Klefavarsla sem er fólgin í þrifum í bað- og búningsklefum auk öryggisgæslu á þeim stöðum
- Afgreiðsla, símsvörun og upplýsingagjöf
- Ræsting og þrif á öðrum rýmum íþróttahússins
- Eftirlit með tækjum, húsbúnaði o.fl. sem heyrir undir íþróttahúsið
- Sýna notendum íþróttahússins gott fordæmi
Menntunar- og hæfniskröfur
- Starfsfólk íþróttamannvirkja verður að vera orðið 20 ára
- Mjög góð hæfni í mannlegum samskiptum, jákvæðni og þolinmæði
- Góð samstarfshæfni og þjónustulund
- Stundvísi, vinnusemi og samviskusemi
- Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Góð íslenskukunnátta skilyrði
- Enskukunnátta æskileg
- Grunnmenntun í skyndihjálp æskileg
- Almenn tölvukunnátta æskileg
Auglýsing birt9. október 2026
Umsóknarfrestur25. október 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Furugrund 83, 200 Kópavogur
Skálaheiði 2, 200 Kópavogur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)
Sambærileg störf (12)

Vaktstjóri
Enterprise Rent-A-Car á Íslandi

Pizzabakari - Pizza baker
EIRIKSSON BRASSERIE

Kvenkyns starfsmaður íþróttamiðstöðvar Norðfjarðar
Fjarðabyggð

Verslunarstjóri Kjöthallarinnar - Skipholti 70
Kjöthöllin ehf.

Lyfja Garðatorgi - þjónusta og ráðgjöf
Lyfja

Newrest – Catering Delivery
NEWREST ICELAND ehf.

Lyfjaskömmtun Apótekarans - framtíðarstarf
Apótekarinn

Jólastarfsfólk í allar verslanir
Flying Tiger Copenhagen

Viltu vinna fyrir mikilvægasta fólkið?
Skólamatur

Verslunarstjóri Huppu í Garðabæ
Ísbúð Huppu

Starfsmaður við afgreiðslu / aðstoð
Sjúkraþjálfarinn ehf.

Sorptunnuþrif ehf. - þrif - fullt starf
Umsókn um almennt starf Sorptunnuþrif