

Starfsmaður á heimili fyrir fatlað fólk – Blikaás
Hafnarfjarðarbær óskar eftir að ráða metnaðarfullan og öflugan starfsmann í starf á heimili fatlaðs fólks.
Fjölbreytt og spennandi starf þar sem unnið er eftir hugmyndafræði Þjónandi leiðsagnar með áherslu á að íbúum líði vel í þægilegu og öruggu umhverfi heimilisins.
Um er að ræða 70% starf þar sem unnið er aðra hverja helgi.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Veita fötluðu fólki stuðning við athafnir daglegs lífs.
- Fylgja eftir þjónustuáætlunum og verklagsreglum
- Virkja þjónustunotendur til ýmissa tómstunda
- Hafa gaman í vinnunni og vera öðrum fyrirmynd
- Almenn heimilisstörf
- Önnur verkefni skv. starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni
Menntun- og hæfniskröfur:
- Reynsla af sambærilegu starfi kostur
- Hæfni í mannlegum samskiptum
- Frumkvæði og samviskusemi
- Þjónustulund og jákvæðni í starfi
- Áhugi á málefnum fatlaðs fólks
- Íslenskukunnátta skilyrði
- Líkamleg geta til að sinna verkefnum á vinnustað
Æskilegt er að viðkomandi hafi náð 20 ára aldri, en skilyrði er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð.
Frekari upplýsingar um starfið veitir Stefán Arnarson, forstöðumaður í síma: 555-6554, netfang: [email protected]
Launakjör samkvæmt gildandi kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Starfsmannafélag Hafnarfjarðar.
Umsóknarfrestur er til og með 3. febrúar 2026
Umsókn fylgi greinargóð ferilskrá.
Vakinn er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.
Íslenska





















