
Dagar hf.
Dagar eru framsækið en rótgróið fyrirtæki og saga okkar nær allt aftur til ársins 1980.
Við leggjum áherslu á að skapa framúrskarandi umhverfi fyrir fyrirtæki framtíðarinnar. Sérhæfing okkar byggir á áratuga reynslu, framsækni og frábæru starfsfólki. Við höfum einsett okkur að vera í fremstu röð í ræstingum og þrifum, fasteignaumsjón og virðisaukandi vinnustaðalausnum þegar kemur að þjónustustigi, öryggi og nýjungum.
Starfsemin teygir anga sína víða um land, Dagar eru með fastar starfsstöðvar á Akureyri, Selfossi og í Reykjanesbæ auk höfuðstöðva í Garðabæ.
Hjá Dögum starfar öflugur hópur fólks sem nýtir hugvit sitt og verkvit til að létta viðskiptavinum sínum lífið.
Gildin okkar eru virðing, frumkvæði, ábyrgð og gæði.
Vinnustaðurinn
Hjá Dögum starfa um 800 einstaklingar af mismunandi þjóðernum, með fjölbreyttan bakgrunn, reynslu og þekkingu.
Virk þátttaka og helgun starfsfólks er lykillinn að velgengni okkar. Árangur okkar er drifinn áfram af metnaði og knýjandi þörf fyrir að leita sífellt leiða til að gera betur, auka gæði og draga úr sóun ásamt forvitni okkar, frumkvæði og aga við að þróa nýjar þjónustulausnir sem viðskiptavinir okkar kunna að meta.
Við leggjum áherslu á starfstengda fræðslu og frá fyrsta degi fær starfsfólk þjálfun sem leggur áherslu á öryggi og tryggir rétt handtök í einu og öllu.
Við vitum að ánægt starfsfólk er lykillinn að ánægðum viðskiptavinum og þess vegna leggjum við áherslu á heilbrigt og fjölskylduvænt vinnuumhverfi, góða þjálfun og hrós fyrir vel unnið verk. Við liðsinnum okkar fólki að eflast og ná árangri og erum stolt þegar við sjáum það blómstra í lífi og starfi.

Starfsfólk óskast í ræstingar hjá Dögum / Cleaning jobs at Dagar
Dagar leita að öflugu og áreiðanlegu starfsfólki í ræstingar. Við leitum að jákvæðu, samviskusömu og duglegu fólki sem vill ganga til liðs við öflugan hóp hjá Dögum. Um er að ræða fjölbreytt störf við ræstingar á mismunandi vinnustöðum.
Við leitum að fólki sem:
- Er áreiðanlegt, stundvíst og samviskusamt
- Getur unnið bæði sjálfstætt og sem hluti af teymi
- Hefur jákvætt viðmót og leggur metnað í vel unnin störf
- Getur tjáð sig og skilið ensku – skilyrði
- Er með gilt bílpróf – skilyrði
- Reynsla af ræstingum er kostur en ekki skilyrði
Við bjóðum:
- Fjölbreytt og stöðugt starf
- Góða vinnuaðstöðu og skipulagt starfsumhverfi
- Góðan starfsanda og öflugt teymi
- Þjálfun og stuðning í starfi
- Möguleika á mismunandi starfshlutfalli
Hefur þú áhuga á að ganga til liðs við okkur?
Við hvetjum áhugasama til að sækja um og verða hluti af Dögum.
--------------------
Dagar is looking for hardworking and reliable cleaning staff.
We are looking for positive and motivated individuals who would like to join our strong team at Dagar. The work involves a variety of cleaning duties at different locations.
We are looking for people who:
- Are reliable, punctual, and responsible
- Can work independently and as part of a team
- Have a positive attitude and a strong work ethic
- Can communicate in and understand English – required
- Have a valid driving licence – required
- Have previous cleaning experience – preferred but not required
We offer:
- Varied and stable work
- Good working conditions and a well-organised work environment
- A positive workplace culture and a supportive team
- Training and ongoing support
- Flexible working hours, with both full-time and part-time opportunities
Interested in joining us?
Apply today and become part of the Dagar team!
Auglýsing birt26. ágúst 2026
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Lyngás 17, 210 Garðabær
Starfstegund
Hæfni
Hreint sakavottorðJákvæðniÖkuréttindiSjálfstæð vinnubrögð
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (10)

Starfsmaður í ræstingar
Ívera hf.

Starfsmaður ræstingu
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Starfsmaður á orlofssvæði á Suðurlandi
Fagfélögin

Skólaliði og ræstingar í Fjarðarborg í 50% starf
Grunnskólinn Borgarfirði eystra

Starfsmaður við svellagerð og húsvörslu
Skautahöllin Akureyri

Sorptunnuþrif ehf. - þrif - fullt starf
Umsókn um almennt starf Sorptunnuþrif

Kvenkyns starfsmaður íþróttamiðstöðvar Norðfjarðar
Fjarðabyggð

Starfsmaður í íþróttamannvirkjum - helgarstarf
Kópavogsbær

Starfsfólk óskast til ræstinga
Hreint ehf

Hlutastörf við ræstingar á Akureyri
Hreint ehf