Fagfélögin
Fagfélögin

Starfsmaður á orlofssvæði á Suðurlandi

Fagfélögin leita að starfsmanni á orlofssvæði á Suðurlandi

60–80% starf | Starfsstöð á Laugarvatni

Fagfélögin leita að öflugum og þjónustulunduðum starfsmanni til starfa á orlofssvæði félagsins á Suðurlandi.

Orlofsdeild Fagfélaganna hefur umsjón með sumarhúsum RSÍ, VM, MATVÍS, Flugfreyjufélags Íslands og Sjómannafélags Grindavíkur (SVG) á Suðurlandi. Við leitum að starfsmanni sem hefur metnað fyrir því að halda eignum og umhverfi þeirra snyrtilegu og veita orlofsgestum góða þjónustu.

Helstu verkefni

  • Þrif og frágangur í sumarhúsum og öðrum orlofseignum.

  • Almenn umhirða og viðhald á eignum og útisvæðum.

  • Þjónusta við orlofsgesti og aðstoð eftir þörfum.

  • Önnur tilfallandi verkefni sem tengjast rekstri orlofssvæðisins.

Hæfniskröfur

  • Rík þjónustulund og jákvætt viðmót.

  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð.

  • Samviskusemi og vandvirkni.

  • Hæfni til að vinna bæði sjálfstætt og með öðrum.

  • Gilt bílpróf er skilyrði.

Starfskjör

  • Starfshlutfall er 60–80%.

  • Starfsstöð er á Laugarvatni.

  • Nánari upplýsingar um ráðningarkjör veita Fagfélögin.

Ef þú ert jákvæð/ur, vandvirk/ur og hefur áhuga á fjölbreyttu starfi í fallegu umhverfi á Suðurlandi, hvetjum við þig til að sækja um.

Umsóknir og fyrirspurnir sendist á [email protected] fyrir 01.11.2026.

Við hlökkum til að heyra frá þér!

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Þrif og frágangur í sumarhúsum og öðrum orlofseignum.

  • Almenn umhirða og viðhald á eignum og útisvæðum.

  • Þjónusta við orlofsgesti og aðstoð eftir þörfum.

  • Önnur tilfallandi verkefni sem tengjast rekstri orlofssvæðisins.

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Gilt bílpróf er skilyrði.
Fríðindi í starfi
  • Stytting vinnuvikunnar
  • Líkamsræktarstyrkur
Auglýsing birt19. október 2026
Umsóknarfrestur31. október 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Laugarvatn 167638, 801 Selfoss
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar