
Sporhundaþjálfari hjá Björgunarsveit Hafnarfjarðar
Björgunarsveit Hafnarfjarðar leitar að metnaðarfullum og ábyrgum aðila til að sinna þjálfun og umsjón með sporhundum sveitarinnar. Starfið er afar mikilvægt, þar sem vel þjálfaðir sporhundar geta skipt sköpum í leitaraðgerðum og rannsóknarvinnu.
Starfið felur í sér náið samstarf með björgunarsveitinni og lögreglu, þar sem sporhundar eru nýttir bæði í björgunaraðgerðum og við rannsóknir. Um er að ræða lifandi og fjölbreytt starf þar sem reynir á fagmennsku, úthald og sterka ábyrgðartilfinningu.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Reglubundin þjálfun sporhunda með áherslu á úthald og árangur í fjölbreyttum aðstæðum.
- Skipulag og framkvæmd reglulegrar sporaþjálfunar, þar með talið uppsetning æfinga og mat á framförum.
- Leitar- og úthaldsþjálfun til að tryggja að hundar séu alltaf í útkallshæfu ástandi.
- Dagleg umhirða sporhundanna, þar á meðal fóðrun, viðrun og eftirlit með líðan og heilsufari.
- Umsjón með hundagerði og aðstöðu sporhundanna.
- Undirbúningur fyrir útköll og þátttaka í þeim þegar við á
- Samvinna við aðra þjálfara og sjálfboðaliða við uppsetningu æfinga og verkefna
- Umsjón með búnaði, m.a. lyktarsýnum og öðrum sérhæfðum þjálfunargögnum
Menntunar- og hæfniskröfur
- Góð samskiptahæfni og geta til að geta unnið bæði sjálfstætt og í teymi
- Skipulögð og öguð vinnubrögð
- Líkamlegt og andlegt úthald í samræmi við kröfur starfsins
- Æskilegt er að umsækjandi hafi reynslu af hundaþjálfun, sérstaklega vinnuhundum
- Kostur að hafa reynslu af starfi innan björgunarsveita
- Hreint sakavottorð
Auglýsing birt1. maí 2026
Umsóknarfrestur17. maí 2026
Tungumálahæfni
EnskaNauðsyn
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Hólshraun 9, 220 Hafnarfjörður
Hvaleyrarbraut 32, 220 Hafnarfjörður
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (5)

Akademísk staða við félagsvísindadeild
Háskólinn á Bifröst

Analytical R&D Scientist / Sérfræðingur í þróun mæliaðferða
Alvotech hf

Rannsóknastjóri
Háskólinn á Akureyri

Sérfræðingur í markaðsrannsóknum og samfélagsmiðlum
EMC markaðsrannsóknir

Sérfræðingur við Rannsóknasetur í byggða- og sveitarstjórnarmálum
Háskólinn á Bifröst