
Háskólinn á Bifröst
Háskólinn á Bifröst hefur í meira en hálfa öld menntað fólk til áhrifa og ábyrgðar í íslensku samfélagi. Háskólinn leggur áherslu á samþættingu fræða og framkvæmdar og hefur verið leiðandi hér á landi í uppbyggingu og þróun stafrænnnar menntunar á háskólastigi.

Akademísk staða við félagsvísindadeild
Háskólinn á Bifröst leitar að akademískum starfsmönnum innan félagsvísindadeildar. Um er að ræða 1-2 stöður og til greina kemur að ráða í hlutastöðu sem og fulla stöðu. Við leitum að einstaklingi með metnað og áhuga á að taka virkan þátt í þróun kennslu og rannsókna við deildina.
Stöðurnar sem um er að ræða eru á sviði öryggisfræða, almannavarna og áfallastjórnunar, og einnig á sviði menningar- og skapandi greina eða almennra félagsvísinda.
Háskólinn á Bifröst leggur áherslu á samþættingu fræða og framkvæmdar í kennslu og er leiðandi í þróun stafræns fjarnáms á háskólastigi hér á landi. Háskólinn á Bifröst er með starfsstöðvar í Reykjavík og á Hvanneyri.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Kennsla á sviðum öryggisfræða, almannavarna og áfallastjórnunar, og einnig á sviði menningar- og skapandi greina eða almennra félagsvísinda.
- Rannsóknir og fræðastörf
- Mótun og þátttaka í rannsóknarverkefnum og umsóknir í rannsóknarsjóði, jafnt innlenda sem erlenda
- Þátttaka í samfélagslegri umræðu á fræðasviðinu
- Þátttaka í stefnumótun og stjórnun
Menntunar- og hæfniskröfur
- Viðeigandi framhaldsmenntun á háskólastigi, doktorspróf er æskilegt
- Reynsla af fjarkennslu á háskólastigi er kostur
- Reynsla af rannsóknum
- Reynsla af uppbyggingu og mótun námskeiða er kostur
- Reynsla af stjórnun á háskólastigi er kostur
- Tengsl við eða reynsla af atvinnulífi og hinu opinbera er kostur
- Skipulagsfærni, þjónustulund og faglegur metnaður
- Mjög góð færni í íslensku og ensku, í ræðu og riti
Auglýsing birt30. apríl 2026
Umsóknarfrestur25. maí 2026
Tungumálahæfni
EnskaNauðsyn
ÍslenskaNauðsyn
Starfstegund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)
Sambærileg störf (5)

Deildarforseti sálfræðideildar Háskólans í Reykjavík
Háskólinn í Reykjavík

Analytical R&D Scientist / Sérfræðingur í þróun mæliaðferða
Alvotech hf

Rannsóknastjóri
Háskólinn á Akureyri

Sérfræðingur í markaðsrannsóknum og samfélagsmiðlum
EMC markaðsrannsóknir

Sérfræðingur við Rannsóknasetur í byggða- og sveitarstjórnarmálum
Háskólinn á Bifröst