Halló
Halló
Halló

Sölustarf í persónu

Um er að ræða sölustarf í persónu.
Vilt þú:

  • Vinna á skemmtilegum vinnustað?
  • Vera með sveigjanlegan vinnutíma?
  • Vinna með gervigreind?
  • Hjálpa fyrirtækjum að stíga skref inn í framtíðina?

Ef svo er, þá viljum við endilega fá þig í teymið okkar!

Starfsumhverfi
Hjá Halló leggjum við áherslu á góðan starfsanda, sveigjanleika og virðingu. Við trúum því að öflug samskipti, innanhúss og við viðskiptavini, séu lykillinn að góðri þjónustu. Þjálfun og stuðningur eru í fyrirrúmi, og við stöndum saman að verkefnum.

Starfsemi
Halló sérhæfir sig í þjónustusvörun, spjallmennum, símsvörun, netspjalli og fjölbreyttri þjónustu í samskiptum fyrir fyrirtæki og stofnanir um allt land.

Hlutverkið
Við leitum að kraftmikilli manneskju í sölustarf, með áherslu á að kynna og selja snjallmennið okkar LINDU ásamt fleiri vörum. Starfið felur í sér samtöl við fyrirtæki sem vilja bæta þjónustu sína og nýta sér tækni til að ná árangri. Þetta er spennandi tækifæri til að móta hlutverk, hafa áhrif og taka þátt í hraðri þróun. Góð laun í boði með sölubónus.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Sala og kynning á þjónustu Halló, sérstaklega snjallmenninu LINDU
  • Samskipti við núverandi og nýja viðskiptavini
  • Samvinna við markaðs- og tækniteymi

Ef þú hefur áhuga á að vera hluti af framsæknu og góðu teymi, sendu okkur umsókn.
Við hlökkum til að heyra frá þér!

Auglýsing birt19. desember 2025
Umsóknarfrestur15. janúar 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Nóatún 17, 105 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.ÁreiðanleikiPathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.GervigreindPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.SölumennskaPathCreated with Sketch.TeymisvinnaPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar