Smyril Line Ísland ehf.
Smyril Line Ísland ehf.
Smyril Line Ísland ehf.

Skrifstofufulltrúi

Smyril Line Cargo óskar eftir skipulögðum og þjónustulunduðum starfsmanni í fullt starf á starfsstöð sína í Reykjavík.

Starfið felur í sér dagleg verkefni í innflutnings- og tolladeild félagsins þar sem viðkomandi mun starfa í góðum hópi metnaðarfullra starfsmanna. Helstu verkefni eru farmskrárgerð, reikningagerð og almenn þjónusta við viðskiptavini.
Starfið er fjölbreytt og krefjandi með mikla ábyrgð, þar sem náin samvinna er við viðskiptavini, samstarfsaðila og tollayfirvöld.

Starfshlutfall: 100%.
Vinnutími: 8:30 til 16:30 virka daga og lengur eftir þörfum.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Farmskrár- og reikningagerð
  • Skjalavinnsla og frágangur gagna
  • Almenn skrifstofustörf og þjónusta við viðskiptavini
  • Samskipti við innlenda og erlenda samstarfsaðila
  • Önnur tilfallandi verkefni sem deildarstjóri eða framkvæmdastjóri leggur til
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Menntun sem nýtist í starfi
  • Góð almenn tölvukunnátta
  • Kunnátta á Dynamics 365 Business Central er kostur
  • Nákvæmni og skipulag í vinnubrögðum
  • Góð færni í mannlegum samskiptum og jákvætt viðmót
  • Góð íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti
Auglýsing birt8. september 2026
Umsóknarfrestur29. september 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Klettháls 1, 110 Reykjavík
Starfstegund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar