Rauði krossinn á höfuðborgarsvæðinu
Rauði krossinn á höfuðborgarsvæðinu
Rauði krossinn á höfuðborgarsvæðinu

Skaðaminnkandi verkefni Rauða krossins - Ylja neyslurými - heilbrigðisstarfsfólk

Auglýst er eftir heilbrigðismenntuðu starfsfólki í skaðaminnkandi verkefni Rauða krossins - Ylja neyslurými, 20-50 % starf

Viltu vinna mikilvægt og gefandi starf sem hefur bein áhrif á líf fólks í viðkvæmri stöðu?
Rauði krossinn á höfuðborgarsvæðinu leitar að hjúkrunarfræðingum, sjúkraliðum, læknum/læknanemum og bráðatæknum með tilskylda reynslu og þekkingu í hluta eða fullt starf í skaðaminnkunarverkefni félagsins, neyslurýmið Ylju.

Þetta er einstakt tækifæri fyrir rétta einstaklinga sem hafa áhuga á skaðaminnkun, mannréttindum og notendamiðaðri heilbrigðisþjónustu.

Hvað er Ylja?

✔️ Ylja er fyrsta neyslurýmið á Íslandi – skaðaminnkandi úrræði fyrir einstaklinga sem nota vímuefni í æð.
✔️ Markmið verkefnisins er að auka lífsgæði og bæta heilsufar þeirra sem nota reglubundið vímuefni í æð.
✔️ Neyslurými eru lagalega vernduð umhverfi þar sem notendur 18 ára og eldri geta neytt ávana- og fíkniefna undir eftirliti sérhæfðs starfsfólks, með fyllstu hreinlætis-, öryggis- og sýkingavörnum.
✔️ Þessi úrræði eru starfrækt víða um heim og hafa sýnt fram á mikinn samfélagslegan ávinning bæði fyrir einstaklingana sjálfa og samfélagið í heild.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Veita heilbrigðisþjónustu í neyslurými Ylju með áherslu á skaðaminnkun og heilsuvernd
  • Standa vaktina í neyslurými ásamt starfsfólki
  • Þróa og innleiða verklagsreglur um heilbrigðisverklag fyrir neyslurými í samstarfi við hjúkrunarfræðing skaðaminnkunarteymisins
  • Veita fræðslu, stuðning og ráðgjöf til einstaklinga í jaðarstöðu
  • Önnur tilfallandi verkefni tengd skaðaminnkun

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Mat, meðferð og eftirfylgd með sárum og sýkingum hjá þjónustuþegum
  • Tengiliður í heilbrigðis- og félagsþjónustu
  • Samskipti og sálfélagslegur stuðningur við þjónustuþega
  • Fræðsla, kynning og þjálfun nýrra sjálfboðaliða
  • Beita hugmyndafræði skaðaminnkunar í allri vinnu og þjónustu við þjónustuþega
  • Önnur tilfallandi verkefni

Hæfniskröfur og eiginleikar sem við leitum að

  • Starfsmaður með menntun á sviði heilbrigðismenntunar t.d hjúkrunarfræðingar, sjúkraliðar, læknar/læknanemar og bráðatæknar með tilskylda reynslu og þekkingu
  • Góð þekking á hugmyndafræði skaðaminnkunar er skilyrði
  • Góð samskiptahæfni og reynsla í vettvangsstarfi er kostur
  • Þekking á málefnum og starfi Rauða krossins er kostur
  • Hæfni til að vinna í notendamiðaðri heilbrigðisþjónustu
  • Mjög góð íslensku- og enskukunnátta, önnur tungumál eru kostur

📅 Umsóknarfrestur: 30.des - Umsóknir eru yfirfarnar jafnóðum – viðkomandi þarf að hefja störf sem fyrst

Við hvetjum fólk af öllum kynjum til að sækja um.
Aðeins er tekið á móti umsóknum í gegnum Alfreð – við förum yfir umsóknir jafnóðum og þær berast.

📩 Nánari upplýsingar:
Ósk Sigurðardóttir, deildarstjóri
✉️ [email protected]

Auglýsing birt19. desember 2025
Umsóknarfrestur30. desember 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Efstaleiti 9, 103 Reykjavík
Borgartún 5, 105 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.SamviskusemiPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.SveigjanleikiPathCreated with Sketch.Vinna undir álagi
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar