Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Sjúkraliði með diplómunám

Norðurmiðstöð leitar að öflugum sjúkraliða sem lokið hefur fagdiplómunámi til starfa í heimahjúkrun á Sléttuveg. Um er að ræða fullt starf í dagvinnu á starfsstað með sólarhringsþjónustu, tilraunaverkefni til eins árs.

Jákvæðni og liðsheild einkennir starfsstaðin og er lögð áhersla á þverfaglegt starf í samráði við þjónustuþega sem hafa fjölbreyttar hjúkrunarþarfir. Starfað er eftir gæðastefnu velferðarsviðs og hugmyndafræði heimahjúkrunar.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Umsjón með heildrænni þjónustu inni á starfsstaðnum í samráði við teymisstjóra heimahjúkrunar
  • Verkstjórn með verkefnum starfsfólks heimahjúkrunar
  • Taka virkan þátt í starfsemi teymis og teymisvinnu
  • Sinna sérhæfðari hjúkrunarmeðferð og öðrum hjúkrunarviðfangsefnum sem við á
  • Taka þátt í eftirfylgd og mati á hjúkrunaráætlunum í samvinnu við teymisstjóra hjúkrunar
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Íslenskt sjúkraliðaleyfi
  • Jafnframt skal hafa lokið a.m.k. 60 ECTS eininga formlegu fagdiplómanámi á kjörsviði hjúkrunar í viðurkenndum háskóla fyrir starfandi sjúkraliða.
  • Reynsla af teymisvinnu og vinna með hjúkrunaráætlun
  • Sjálfstæði og sveigjanleiki í vinnubrögðum
  • Góð samskipta-og skipulagshæfni
  • Íslenska, gott málfar og góður frágangur á texta (C1-skv.evrópska tungumálarammanum)
  • Þekking á sjúkraskrárkerfi SÖGU æskileg
  • Hreint sakavottorð í samræmi við lög sem og reglur Reykjavíkurborgar
Fríðindi í starfi
  • Samgöngustyrkur
  • Heilsustyrkur
  • Menningarkort
  • Frítt í sundlaugar Reykjavíkurborgar
  • 36 stunda vinnuvika
Auglýsing birt16. desember 2025
Umsóknarfrestur4. janúar 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Sléttuvegur 7, 103 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar