Ævintýraborg ið Eggertsgötu
Ævintýraborg ið Eggertsgötu
Ævintýraborg ið Eggertsgötu

Sérkennslustjóri

Laust er til umsóknar starf sérkennslustjóra í Ævintýraborg við Eggertsgötu. Leikskólinn er 5 deilda með 85 börn á aldrinum 1-6 ára. Leikskólinn vinnur eftir hugmyndafræði Reggio Emilia og leggur mikla áherslu á virðingu og vellíðan. Virkilega spennandi verkefni í gangi og frábært samstarfsfólk.

Sérkennslustjóri sér um skipulagningu á starfi stuðningsaðila sem sjá um stuðning með einstökum börnum. Sérkennslustjóri sér um fundi með fagaðilum og foreldrum og situr deildarfundi og gefur starfsmönnum deildar ráðgjöf varðandi einstök börn.

Um er að ræða 75-100% starf sem laust er um áramót.

Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Ber ábyrgð á og stjórnar skipulagningu, framkvæmd og endurmati sérkennslunnar í leikskólanum ásamt leikskólastjóra.
  • Er faglegur umsjónarmaður sérkennslu í leikskólum, annast frumgreiningu og ráðgjöf til annarra starfsmanna leikskóla
  • Ber ábyrgð á miðlun upplýsinga milli sérkennsluráðgjafa/sérkennslufulltrúa leikskóla og starfsmanna leikskólans.
  • Hefur umsjón með uppeldis- og námsgögnum leikskólans sem tengjast sérkennslu.

Hæfniskröfur:

  • Leikskólasérkennaramenntun, þroskaþjálfamenntun eða önnur sambærileg menntun sem nýtist í starfi
  • Framhaldsmenntun í sérkennslufræðum æskileg
  • Reynsla af sérkennslu
  • Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
  • Frumkvæði, áhugi og metnaður í starfi
  • Íslenskukunnátta B2 skv. samevrópska tungumálarammanum

Fríðindi í starfi

  • Menningarkort – bókasafnskort.
  • Sundkort.
  • Samgöngustyrkaur.
  • Heilsuræktarstyrkur.
  • 36 stunda vinnuvika fyrir fullt starf.

Starfslýsing sérkennslustjóra: https://www.ki.is/kjaramal-og-styrkir/kjarasamningar/felag-leikskolakennara/

Nánari upplýsingar veitir Kristín Petrína Pétursdóttir á netfanginu [email protected] eða í síma 695-2514.

Auglýsing birt25. nóvember 2025
Umsóknarfrestur6. desember 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Eggertsgata 35, 101 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar