
Umhverfis- og orkustofnun
Umhverfis- og orkustofnun tók til starfa 1. janúar 2025. Stofnunin tók við starfsemi Orkustofnunar og hluta af starfsemi Umhverfisstofnunar.
Umhverfis- og orkustofnun fer með stjórnsýslu loftslags-, umhverfis- og orkumála og málefni auðlindanýtingar. Þar á meðal eru verkefni í fjölbreyttum málaflokkum:
Efnamál
Eftirlit
Haf og vatn
Hringrásarhagkerfi
Loftgæði
Loftslags- og orkusjóður
Losunarheimildir
Orkuskipti
Orkunýtni
Starfsemin fer fram á sex starfsstöðvum um allt land en bæði á Borgum á Akureyri og á Suðurlandsbraut í Reykjavík er starfað í verkefnamiðuðu vinnuumhverfi.
Starfsstöðvarnar okkar eru:
Akureyri, Mývatnssveit, Egilsstaðir, Selfoss, Reykjavík og Hvanneyri.

Sérfræðingur í hringrásarhagkerfinu og úrgangsmálum
Laust er til umsóknar starf sérfræðings á sviði Umhverfisgæða í teymi hringrásarhagkerfis. Helstu verkefni sérfræðingsins munu felast í stjórnsýslu úrgangsmála, úrgangsforvörnum og innleiðingu stefnu stjórnvalda í hringrásarmálum. Starfið krefst mikilla samskipta við stofnanir ríkis og sveitarfélaga og einnig við evrópskar og alþjóðlegar stofnanir, hagaðila innanlands og almenning.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Stjórnsýsla úrgangsmála, stuðningur við sveitarfélög, ríki og fyrirtæki á þessu sviði
- Greiningar á EES gerðum og vinna tengd innleiðingu regluverks á sviði hringrásarmála
- Þátttaka í innleiðingu stefnunnar Í átt að hringrásarhagkerfi og Evrópuverkefni (Life Circle) tengdu hen
- Stuðningur við úrgangstölfræði og skýrsluskil
- Stuðningur vegna annara verkefna teymis um hringrásarmál, svo sem miðlun og fræðslu
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólapróf sem nýtist í starfi
- Menntun á sviði opinberrar stjórnsýslu eða lögfræði er kostur
- Menntun eða reynsla á sviði náttúruvísinda er kostur
- Þekking og/eða reynsla af vinnu við hringrásarhagkerfi, úrgangsstjórnsýslu og miðlun er kostur
- Reynsla af því að starfa í teymi er kostur
- Geta til að sýna frumkvæði
- Hæfni til að nálgast verkefni skipulega og reynsla af verkefnastjórn og umbótastarfi
- Gott vald á íslensku og ensku bæði í ræðu og ri
- Góð samstarfshæfni og sveigjanleiki í samskiptum
- Skipulögð og sjálfstæð vinnubrögð
Auglýsing birt21. október 2026
Umsóknarfrestur2. nóvember 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Starfstegund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Velferðarsvið – Teymisstjóri í barnaverndarþjónustu
Reykjanesbær

Sérfræðingur í opinberum innkaupum
FSRE

Teymisstjóri launamála hjá Hafnarfjarðarbæ
Hafnarfjarðarbær

Lögfræðingur
Hafrannsóknarstofnun

Sérfræðingur á sviði náttúruvár með áherslu á ofanflóð og jarðvá
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið

Sérfræðingur á sviði loftslagsmála og náttúruvár með áherslu á aðlögunaráætlun
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið

Sviðsstjóri umhverfis- og eignasviðs Ísafjarðarbæjar
Ísafjarðarbær

Sérfræðingur í rannsóknaþjónustu
Verkfræði- og náttúruvísindasvið Háskóla Íslands

Sérfræðingur í fjárreiðudeild
Hafnarfjarðarbær

Aðstoðarmaður landlæknis
Embætti landlækis

Forstöðumaður vöruvals og innkaupa
Vínbúðin

Ráðgjafi sveitarfélaga
Wise lausnir ehf.