
Lögfræðingur
Hafrannsóknastofnun óskar eftir að ráða öflugan og reynslumikinn lögfræðing til að sinna fjölbreyttum og krefjandi lögfræðilegum verkefnum. Leitað er að einstaklingi sem hefur áhuga og þekkingu á starfsemi stofnunarinnar og þeim málefnum sem falla undir verksvið hennar.
Um er að ræða nýja og spennandi stöðu sem býður upp á tækifæri til að móta og þróa lögfræðilega ráðgjöf innan stofnunarinnar. Starfið felur jafnframt í sér möguleika á að hafa áhrif á starfsemi einnar stærstu ráðgjafa- og rannsóknastofnunar landsins og taka þátt í úrlausn krefjandi lögfræðilegra álitaefna sem tengjast rannsóknum, opinberri stjórnsýslu og sjálfbærri nýtingu auðlinda hafs og vatna.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Lögfræðileg ráðgjöf til stjórnenda og starfsfólks stofnunarinnar, meðal annars vegna langtímastefnu og lögbundins hlutverks stofnunarinnar.
- Lögfræðileg yfirferð, gerð og rýni samninga, meðal annars vegna rannsókna, samstarfsverkefna, innkaupa, starfsmannamála og þjónustu.
- Gerð lögfræðilegra álitsgerða, umsagna um m.a. lagafrumvörp og annarra lögfræðilegra gagna.
- Samskipti og samstarf við ráðuneyti, aðrar ríkisstofnanir og innlenda og erlenda samstarfsaðila.
- Úrlausn lögfræðilegra álitaefna sem tengjast starfsemi stofnunarinnar, meðal annars á sviði stjórnsýsluréttar, upplýsingaréttar, persónuverndar og opinberra innkaupa.
- Þátttaka í mótun og þróun innra verklags, gæðamála og regluverks stofnunarinnar.
- Önnur lögfræðileg verkefni í samráði við stjórnendur.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Embættis- eða meistarapróf í lögfræði.
- Að lágmarki 5 ára starfsreynsla af lögfræðistörfum.
- Góð þekking og reynsla á stjórnsýslurétti.
- Reynsla af úrlausn lögfræðilegra álitaefna.
- Leiðtogahæfileikar, jákvætt viðmót og hæfni til að vinna í teymi.
- Framúrskarandi samskipta- og samstarfshæfni.
- Frumkvæði, metnaður og sjálfstæði í vinnubrögðum.
- Góð stafræn hæfni.
- Mjög góð færni til að tjáningar í ræðu og riti á íslensku og ensku.
- Þekking og reynsla af málefnum sem tengjast starfsemi Hafrannsóknastofnunar er kostur.
Hafrannsóknastofnun, rannsókna- og ráðgjafarstofnun hafs og vatna, heyrir undir Atvinnuvegaráðuneytið og er stærsta rannsóknastofnun landsins á sviði haf- og vatnarannsókna. Stofnunin gegnir auk þess ráðgjafarhlutverki um sjálfbæra nýtingu og verndun auðlinda hafs, vatna og í fiskeldi. Hluti starfseminnar tengist alþjóðlegu samstarfi við erlendar hafrannsóknastofnanir og háskóla. Auk höfuðstöðva í Hafnarfirði rekur stofnunin starfsstöðvar vítt og breytt um landið, tilraunaeldisstöð og tvö rannsóknaskip. Hjá stofnuninni starfa að jafnaði um 200 manns í fjölbreyttum störfum. Nánari upplýsingar um Hafrannsóknarstofnun er að finna á www.hafogvatn.is.
Gildi Hafrannsóknastofnunar eru: Þekking - Samvinna - Þor
Um fullt starf er að ræða. Laun eru samkvæmt kjarasamningi fjármála- og efnahagsráðherra og hlutaðeigandi stéttarfélags. Öllum umsóknum verður svarað og umsækjendum tilkynnt um ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun hefur verið tekin. Umsókn getur gilt í sex mánuði eftir að umsóknarfresti lýkur.
Ófullnægjandi umsóknir eru ekki teknar til greina. Hafrannsóknarstofnun áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum.
Við ráðningu í störf hjá Hafrannsóknastofnun er tekið mið af jafnréttisáætlun stofnunarinnar.
Við hvetjum áhugasöm til að sækja um, óháð kyni og uppruna.
Umsóknarfrestur er til og með 2. nóvember nk.
Umsókn um starfið skal fylgja ítarleg starfsferilsskrá og kynningarbréf. Þar skal gerð grein fyrir þeirri þekkingu, reynslu og hæfni sem nýtist í starfinu með hliðsjón af hæfniskröfum auglýsingarinnar.
Umsjón með starfinu hafa Auður Bjarnadóttir ([email protected]) og Unnur Ýr Konráðsdóttir ([email protected]).
Íslenska










