
Aðstoðarmaður landlæknis
Embætti landlæknis óskar eftir að ráða aðstoðarmann landlæknis. Um er að ræða áhugavert, krefjandi og mjög fjölbreytt starf sem reynir á samskiptahæfni, frumkvæði, fagmennsku og sveigjanleika í vinnutíma. Næsti yfirmaður er landlæknir en viðkomandi mun vinna í nánu samstarfi við aðra starfsmenn embættisins.
-
Er aðstoðarmaður landlæknis og sinnir hvers kyns viðfangsefnum sem styðja landlækni og embætti landlæknis við að rækja hlutverk sitt.
-
Móttaka og úrvinnsla fyrirspurna frá almenningi, fjölmiðlum, opinberum aðilum og fyrirtækjum.
-
Samskipti við fjölmiðla, viðtalsbókanir og skrif fréttatilkynninga.
-
Almenn skrifstofustörf, skjalagerð og skjalavistun.
-
Undirbúningur og eftirfylgni við fundi framkvæmdastjórnar.
-
Þátttaka í undirbúningi, skipulagningu og setu funda og viðburða.
-
Samskipti við erlenda samstarfsaðila.
-
Ýmis önnur verkefni að beiðni landlæknis.
-
Háskólamenntun sem nýtist í starfi.
-
Góð reynsla af samskiptum við fjölmiðla er kostur.
-
Afbragðs þekking og færni í íslensku er skilyrði.
-
Góð færni í ensku er skilyrði, norðurlandamál er kostur.
-
Reynsla af notkun samfélagsmiðla í miðlun upplýsinga.
-
Góð almenn tölvukunnátta, hæfni í notkun helstu skrifstofuforrita.
-
Þekking á heilbrigðiskerfinu er kostur.
-
Reynsla og þekking á opinberri stjórnsýslu er kostur.
-
Vönduð og áreiðanleg vinnubrögð, nákvæmni, skipulagshæfni og þjónustulund.
-
Jákvæðni og lipurð í mannlegum samskiptum, samstarfsvilji og sveigjanleiki í daglegum störfum.
Íslenska
Enska
