

Sérfræðingur á sviði náttúruvár með áherslu á ofanflóð og jarðvá
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið leitar að sérfræðingi með mikinn áhuga á að vinna að málefnum náttúruvár í hópi sérfræðinga ráðuneytisins og í nánu samstarfi við hlutaðeigandi stofnanir. Um er að ræða stöðu sérfræðings á sviði náttúruvár með áherslu á ofanflóð og jarðvá sem kemur til með að vinna að þeim málaflokki í æðstu stjórnsýslu landsins.
Starfið felur í sér krefjandi og metnaðarfull verkefni sem snúa að málefnum náttúruvár, vörnum gegn ofanflóðum og jarðvá og samþættingu við skipulagsmál sem unnið er að í samstarfi við hag- og fagaðila og eftir stefnu ríkisstjórnar og áherslum ráðherra. Viðkomandi kemur til með að leiða verkefni og taka þátt í stefnumótun á sviði náttúruvár.
Staðan er á skrifstofu náttúru og minjaverndar sem fer m.a. með málefni hættumats vegna ofanflóða, eldgosa og jarðskjálfta og byggingu varna vegna náttúruvár m.a. í nánu samstarfi við Ofanflóðanefnd og Veðurstofu Íslands. Verkefnin snúa að því að halda utan um stefnumótun sem varðar náttúruvá. Auk þess sinnir skrifstofan málefnum náttúruverndar, landgræðslu og skógræktar og minjaverndar.
-
Stefnumótun og eftirfylgni hættumats og áhættumats vegna náttúruvár með áherslu á ofanflóð, eldgos og jarðskjálfta.
-
Þátttaka í verkefnum sem snúa að samspili náttúruvár og skipulagsáætlana.
-
Stefnumótun og eftirfylgni verkefna sem tengjast náttúruvá.
-
Samstarf við önnur ráðuneyti og stofnanir
-
Framhaldsmenntun á háskólastigi sem nýtist í starfi.
-
Reynsla á sviði áhættu- eða hættumats er kostur.
-
Reynsla á sviði opinberrar stjórnsýslu er kostur
-
Þekking á sviði náttúruvár er kostur.
-
Haldgóð reynsla af verkefnisstjórnun.
-
Reynsla af stefnumótun og eftirfylgni.
-
Góð stafræn færni og lausnamiðuð hugsun.
-
Frumkvæði, skipulögð vinnubrögð og sjálfstæði í starfi.
-
Mjög góð samskipta- og samvinnufærni og geta til að vinna í teymi.
-
Mjög góð færni í íslensku, bæði í töluðu og rituðu máli.
-
Mjög góð kunnátta í ensku.
Íslenska
Enska










