Hafrannsóknastofnun
Hafrannsóknastofnun
Hafrannsóknastofnun

Sérfræðingur í vatnamálum

Hafrannsóknastofnun leitar að sérfræðingi til starfa við verkefni sem snúa að ferskvatni, árósum og sjó í tengslum við stjórn vatnamála.

Hafrannsóknastofnun hefur rannsókna- og ráðgjafahlutverk í ýmsum verkefnum sem tengjast vatnamálum. Eitt af þeim verkefnum sem starfsmaðurinn mun sinna er LIFE Icewater (https://www.icewater-life.is/) sem Umhverfis- og orkustofnun leiðir en Hafrannsóknastofnun hefur þar veigamikið hlutverk. Einnig mun starfsmaðurinn sinna öðrum verkefnum á stofnuninni sem tengjast stjórn vatnamála.

Aðalviðfangsefni sérfræðingsins verða gagnasöfnun, úrvinnsla gagna og upplýsinga, skýrslugerð og önnur ráðgjafarvinna í tengslum við ferskvatn, árósa og sjó. Einnig er sérfræðingnum ætlað að meta ástand vatnshlota og taka þátt í vinnu við áframhaldandi innleiðingu kerfis um stjórn vatnamála á Íslandi.

Starfið er á umhverfissviði en verkefni vatnamála eru unnin þvert á fagsvið stofnunarinnar þar sem efnistök geta krafist fjölbreytta sérfræðiþekkingar og aðkomu annars sérhæfðs starfsfólks. Starfið kallar því á þverfaglega teymisvinnu innan stofnunar en einnig samstarf við aðrar stofnanir og fleiri hagaðila.

Lögð er áhersla á að ráða drífandi og lausnamiðaðan einstakling sem hefur góða færni í að vinna sjálfstætt og í teymi.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Umsjón og þátttaka í verkefnum sem snúa að stjórn vatnamála á Íslandi. 
  • Þátttaka í þverfaglegum teymum sem vinna að úrlausnarefnum á sviði vatnamála.
  • Öflun og úrvinnsla gagna um vatnshlot í sjó, ferskvatni og árósum.
  • Gerð skýrslna, sérfræðiálita og annarra ráðgjafarskjala. 
  • Fræðsla og önnur miðlun.
  • Þróun lausna við innleiðingu stjórnar vatnamála. 
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi, s.s. á sviði náttúrufræða, verkfræði eða í skyldum greinum
  • Þekking á stjórn vatnamála er kostur.
  • Góð skipulags- og samskiptafærni.
  • Gott gagnalæsi og geta til að vinna úr gögnum.
  • Lausnamiðað hugarfar og hæfni til að setja viðfangsefni í stærra samhengi. 
  • Góð almenn tölvukunnátta.
  • Metnaður, frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.
  • Jákvætt viðmót, samstarfsvilji og hæfni til að vinna í teymi.
  • Færni til að tjá sig í ræðu og riti á íslensku og ensku. Þekking á norðurlandamáli er kostur.
Auglýsing birt15. maí 2026
Umsóknarfrestur3. júní 2026
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Framúrskarandi
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Fornubúðir 5, 220 Hafnarfjörður
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar