Náttúrufræðistofnun
Náttúrufræðistofnun

Sérfræðingur í landfræðilegum greiningum og líkanagerð

Náttúrufræðistofnun auglýsir laust til umsóknar fullt starf sérfræðings á sviði landupplýsinga við landfræðilegar greiningar, líkanagerð, úrvinnslu gagna og þróun tæknilausna á fagsviðinu.

Starfið felur jafnframt í sér þátttöku í rannsóknar- og þróunarverkefnum þar sem unnið er með fjölbreyttar aðferðir til þess að skapa landfræðileg gögn og þekkingu. Um er að ræða starf sem reynir á sjálfstæð vinnubrögð, greiningarhæfni, færni til miðlunar upplýsinga og samstarfshæfileika.

Viðkomandi þarf að hafa áhuga á því að vinna á mörkum tækni, gagna og samfélags. Starfið býður upp á fjölbreytt verkefni og tækifæri til að taka þátt í þróun lausna sem styðja við upplýsta ákvarðanatöku og aukið aðgengi að gögnum.

Æskilegt er að viðkomandi getið hafið störf síðla sumars.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Landfræðilegar greiningar

  • Líkanagerð og úrvinnsla gagna

  • Túlkun og miðlun niðurstaðna

  • Þátttaka í þróun gagnainnviða og tæknilausna

  • Samstarf við sérfræðinga á ólíkum sviðum

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólapróf á sviði landupplýsinga, verkfræði, tölvunarfræði eða skyldra greina

  • Framúrskarandi þekking á QGIS og/eða Python eða R fyrir landupplýsingavinnslu

  • Góð hagnýt reynsla af SQL og vinnu með gagnagrunna

  • Yfirgripsmikil reynsla af landfræðilegum greiningum og líkanagerð

  • Greiningarhæfni og tæknilegur skilningur á landupplýsingum og gagnavinnslu

  • Sjálfstæði í vinnubrögðum, hæfni og vilji til samstarfs

  • Drifkraftur, frumkvæði og vilji til að afla sér nýrrar þekkingar

  • Skipulögð og nákvæm vinnubrögð

  • Reynsla af vinnu með umhverfis- eða náttúrugögn er æskileg

  • Góð íslenskukunnátta í ræðu og riti er kostur

Kostur ef viðkomandi hefur reynslu af:

  • PostgreSQL og PostGIS

  • Landfræðilegri tölfræði

  • Fjarkönnun

  • Sjálfvirknivæðingu verkferla

  • Miðlun og framsetningu gagna

Auglýsing birt23. júní 2026
Umsóknarfrestur2. júlí 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Urriðaholtsstræti 6-8, 210 Garðabær
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar