Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Sérfræðingur á sviði úttekta og kannana

Velferðarsvið Reykjavíkurborgar leitar að sérfræðingi í fullt starf í teymi árangurs- og gæðamats á skrifstofu stjórnsýslu, tímabundið til eins árs.

Um er að ræða fjölbreytt og krefjandi starf fyrir lausnamiðaðan, jákvæðan og skipulagðan einstakling með góða greiningar- og samskiptahæfni, frumkvæði og frjóa hugsun. Viðkomandi þarf að geta unnið sjálfstætt sem og í hópi og geta tekist á við krefjandi verkefni við fjölbreyttar aðstæður.

Sérfræðingur annast að meginstefnu til undirbúning og framkvæmd úttekta á þjónustu velferðarsviðs í málaflokki fatlaðs fólks í samvinnu við skrifstofu um málefni fatlaðs fólks, sem ber ábyrgð á innra eftirliti. Þá tekur sérfræðingur þátt í nefndarstarfi og vinnuhópum vegna verkefna teymisins.

Velferðarsvið veitir fjölbreytta og metnaðarfulla velferðarþjónustu sem hefur það að meginmarkmiði að stuðla að auknum lífsgæðum íbúa Reykjavíkurborgar. Undir sviðið heyra 117 starfsstaðir, þar af 77 sem veita sólarhringsþjónustu.

Velferðarsvið kallar eftir sakavottorðum í samræmi við lög sem og reglur Reykjavíkurborgar.

Í samræmi við mannréttindastefnu Reykjavíkurborgar og velferðarstefnu er lögð áhersla á að starfsstaðir velferðarsviðs endurspegli fjölbreytileika samfélagsins. Við hvetjum því fólk af öllum kynjum, fatlað fólk og fólk með fjölbreyttan menningarlegan bakgrunn til að sækja um starfið.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Undirbúningur og framkvæmd úttekta og kannana á þjónustu í málaflokki fatlaðs fólks
  • Þátttaka í nefndum og vinnuhópum vegna verkefna teymisins.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólapróf sem nýtist í starfi, s.s. á sviði félags-, mennta- eða heilbrigðisvísinda
  • Framhaldsmenntun er kostur.
  • Þekking og reynsla af rannsóknum og aðferðafræði.
  • Mjög góð færni í tölfræði og úrvinnslu gagna.
  • Reynsla af greiningum og gagnavinnslu, t.d. SPSS.
  • Reynsla af myndbirtingarhugbúnaði á borð við PowerBI er kostur.
  • Þekking og reynsla af rannsóknum og greiningu á málefnasviði fatlaðs fólks er kostur.
  • Hæfni til að miðla upplýsingum á skýran og greinargóðan hátt.
  • Mjög góð hæfni í mannlegum samskiptum og geta til að vinna í teymum.
  • Íslenskukunnátta C1 og enskukunnátta B2 samkvæmt samevrópskum matskvarða.
Auglýsing stofnuð30. apríl 2024
Umsóknarfrestur14. maí 2024
Tungumálakunnátta
ÍslenskaÍslenskaFramúrskarandi
EnskaEnskaMjög góð
Staðsetning
Borgartún 12-14, 105 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.RannsóknirPathCreated with Sketch.SamvinnaPathCreated with Sketch.Vinnsla rannsóknargagna
Starfsgreinar
Starfsmerkingar