Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Sumarstarf: stuðningsfulltrúi óskast á besta stað í bænum

Íbúðakjarninn að Árlandi 10 óskar eftir að ráða hæfileikaríkt og drífandi fólk í sumarafleysingar. Um er að ræða skemmtilegt, fjölbreytt og gefandi starf á líflegum vinnustað þar sem lögð er áhersla á jákvæðni, samvinnu og vinsemd. Unnið er á fjölbreyttum vöktum með afar góðum tekjumöguleikum, en starfshlutfall er samkomulagsatriði.

Helstu verkefni og ábyrgð

Í íbúðarkjarnanum búa sex einstaklingar með þroskahömlun og skyldar raskanir, en þjónustan miðar að því að auka sjálfstæði, lífsgæði og hamingju íbúanna. Unnið er eftir hugmyndafræðinni um sjálfstætt líf, en hlutverk stuðningsfulltrúa er að styðja og aðstoða íbúa við allar athafnir daglegs lífs. Í því felst að gera íbúum kleift að búa á eigin heimili, stunda vinnu og njóta menningar og félagslífs.

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Góð almenn menntun.
  • Viðkomandi þarf að vera 20 ára eða eldri.
  • Bílpróf
  • Íslenskukunnátta B1 skilyrði.
  • Hreint sakavottorð í samræmi við lög sem og reglur Reykjavíkurborgar.
  • Reynsla af starfi með fötluðu fólki er æskileg.
  • Jákvæðni og góð hæfni í mannlegum samskiptum.
  • Frumkvæði, stundvísi, áreiðanleiki og sjálfstæði í vinnubrögðum.
  • Hæfni til að takast á við krefjandi vinnuumhverfi undir handleiðslu fagfólks.
Auglýsing stofnuð8. apríl 2024
UmsóknarfresturEnginn
Staðsetning
Árland 10
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar