
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Velferðasvið ber ábyrgð á áætlanagerð, samhæfingu og samþættingu verkefna á sviði velferðarþjónustu, eftirliti í samræmi við lög, reglur, samþykktir og pólitíska stefnu í velferðarmálum, mat á árangri og þróun velferðarþjónustu og nýrra úrræða og gerð þjónustusamninga um framkvæmd þjónustunnar. Velferðarsvið býr Reykjavíkurborg ennfremur undir að taka við nýjum velferðarverkefnum frá ríki svo sem í málefnum fatlaðra, öldrunarþjónustu og heilsugæslu.
Velferðarsvið ber ábyrgð á framkvæmd þjónustu á sviði velferðarmála, þar með talinni félagsþjónustu fyrir alla aldurshópa og barnavernd. Velferðarsvið ber ábyrgð á rekstri þjónustumiðstöðva Reykjavíkurborgar og starfseininga sem undir þær heyra. Velferðarsvið vinnur með velferðarráði og barnaverndarnefnd og sinnir málefnum þeirra. Þjónustumiðstöðvar vinna með hverfaráðum í hverfum borgarinnar.
Velferðarsvið sér einnig um rekstur miðlægrar velferðarþjónustu þvert á borgina, átaksverkefna vegna endurhæfingar fólks, heildstæðu forvarnastarfi í Reykjavík, inntöku í húsnæðis- og búsetuúrræði, rekstur hjúkrunarheimila, rekstur framleiðslueldhúss og rekstur heimahjúkrunar í Reykjavík samkvæmt samningi við ríkið þar um.

Sálfræðingur í deild barna og fjölskyldna
Norðurmiðstöð óskar eftir metnaðarfullum og drífandi sálfræðing til starfa í deild barna og fjölskyldna.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Sálfræðilegar athuganir, greiningar og ráðgjöf fyrir börn og unglinga.
- Ráðgjöf við foreldra og starfsfólks skóla vegna nemenda.
- Námskeiðahald og fræðsla.
- Samstarf og samvinna við lykilstofnanir sem koma að málefnum barna.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Löggilding til að starfa sem sálfræðingur.
- Þekking á þroska og þroskafrávikum barna.
- Reynsla af sálfræðilegri greiningu og ráðgjöf vegna barna er æskileg.
- Áhugi á þróun sálfræðiþjónustu og þverfaglegs starfs.
- Skipulagshæfileikar, sjálfstæði, frumkvæði og leikni í mannlegum samskiptum.
- Íslenskukunnátta á stigi C1 (samkvæmt evrópska tungumálarammanum.)
- Hreint sakavottorð í samræmi við lög og reglur Reykjavíkurborgar.
Fríðindi í starfi
- 36 stunda vinnuvika
- Heilsustyrkur
- Sundkort
- Menningarkort
- Samgöngustyrkur
Auglýsing birt18. ágúst 2026
Umsóknarfrestur28. ágúst 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Efstaleiti 1, 103 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
Sálfræðingur
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (5)

Ráðgjafi heim í SkaHm þekkingarmiðstöð
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Félagsráðgjafi í deild barna- og fjölskyldna
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Íbúðakjarninn Kleppsvegi óskar eftir stuðningsfulltrúa
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Þroskaþjálfi í Virknimiðstöð Reykjavíkur
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Virkniþjálfi í BORGUM, félags og menningamiðstöð
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Sambærileg störf (1)
