Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Ráðgjafi heim í SkaHm þekkingarmiðstöð

kaHm er heildstæð þjónusta fyrir börn með tilfinninga- og hegðunarvanda sem og fjölskyldur þeirra.

Laus er 80% staða í Ráðgjafinn heim sem sinnir Heimastuðning og ráðgjöf.

Þjónusta SkaHm skiptist í tvö svið, Ráðgjafarsvið og Dvalarsvið.

Undir Ráðgjafasviði er Heimastuðningur og ráðgjöf ásamt Þekkingu.
Heimastuðningur og ráðgjöf – Leggur áherslu á að styðja barn í tilfinningavanda og valdefla/styðja foreldra í uppeldishlutverki sínu. Þjónustan er bæði veitt inn á heimili og utan þess.
Þekking – Leggur áherslu á lausnarmiðaða ráðgjöf, handleiðslu og fræðslu m.t.t. faglegrar nálgunar í vinnu með börnum og fjölskyldum.

Undir Dvalarsviði er Styrkur og Dvöl.
Styrkur – Markmiðsdrifin þjónusta sem felur í sér að styðja barnið við að efla félagsfærni, sjálfstæði og virkni í daglegum athöfnum.
Dvöl – Er sólarhringsþjónusta þar sem börnum og foreldrum er veitt tímabundin hvíld með það að markmiði að draga úr streituvaldandi aðstæðum. Auk þess felst starfsemin í því að styðja barnið í athöfnum daglegs lífs.

Allt starf SkaHm byggir á teymisvinnu þar sem unnið er að farsæld barnsins.

Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Uppeldisráðgjöf og stuðningur við foreldra; unnið er með foreldrum að því að efla jákvæð tengsl, samvinnu og öryggi í uppeldishlutverkinu.
  •  Heimastuðningur; stuðningur veittur inn á heimili þar sem unnið er með fjölskyldunni útfrá markmiðum einstaklingsáætlunar.
  •  Stuðningur við barn; stuðningur beinist á barninu sjálfu með áherslu á athafnir daglegs lífs, tilfinningastjórn, félagsfærni og virkni.
  •  Stefnumótunarvinna með teymisstjóra og öðru starfsfólki.
  •  Samstarf við þjónustumiðstöðvar, málstjóra farsældar, Barnavernd Reykjavíkur og aðra þjónustuaðila sem koma að málefnum barna með fjölþættar stuðningsþarfir
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun á sviði félags-, heilbrigðis- eða menntavísinda.
    Framhaldsmenntun æskileg.
  •  Þekking og reynsla af starfi með börnum með fjölþættar stuðningsþarfir og fjölskyldum þeirra.
  •  Jákvætt viðmót og framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum.
  •  Þekking á lögum um Samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna.
  •  Frumkvæði, sjálfstæði í vinnubrögðum og skipulagshæfni.
  •  Þekking og reynsla af notkun gagnreyndra aðferða í uppeldisstarfi.
  •  Íslenskukunnátta B1 eða hærra (í samræmi við samevrópskan tungumálaramma).
  •  Hreint sakavottorð í samræmi við lög sem og reglur Reykjavíkurborgar
Auglýsing birt19. ágúst 2026
Umsóknarfrestur2. september 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Vesturbrún 17, 104 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FagmennskaPathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.Hreint sakavottorðPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.ÖkuréttindiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.Umönnun (barna/aldraðra/fatlaðra)
Starfsgreinar
Starfsmerkingar