Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Félagsráðgjafi í deild barna- og fjölskyldna

Barna-og fjölskyldudeild óskar eftir öflugum og metnaðarfullum félagsráðgjafa með áhuga og þekkingu á að vinna með börnum, ungmennum og fjölskyldum þeirra.

Verkefni félagsráðgjafa taka til almennrar og sértækrar félags- og velferðarþjónustu, félagsráðgjafi er hluti af þverfaglegu teymi sem sinnir ráðgjöf og stuðningi við börn og fjölskyldur þeirra í deild barna-og fjölskyldumála.

Um er að ræða tímabundið starf til eins árs með möguleika á framlengingu.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Félagsráðgjafi veitir börnum og fjölskyldum þeirra ráðgjöf s.s. félagslegra aðstæðna, uppeldis barna, fjölmenningar, veikinda og fötlunar.
  • Félagsráðgjafi veitir einstaklingsmiðaðan stuðning sem miðar að því að tryggja þátttöku innan og utan heimilis, auka lífsgæði og virkni í samfélaginu eftir því sem við á og þörf krefur. Veitir ráðgjöf og upplýsingar um þjónustu í þágu farsældar barns.
  • Vinnur mat á þjónustuþörfum barns og fjölskyldu þess.
  • Gerir stuðningsáætlun og leggur mat á árangur.
  • Ber ábyrgð á málstjórn í stuðningsteymum þar með talið ráðgjöf og upplýsingar um samþættingu þjónustu. Samstarf og samvinna við lykilstofnanir og hagsmunasamtök í málefnum barna.
  • Í samræmi við mannréttindastefnu Reykjavíkurborgar er lögð áhersla á að starfsstaðir velferðarsviðs endurspegli fjölbreytileika samfélagsins. Við hvetjum því fólk af öllum kynjum, fatlað fólk og fólk með fjölbreyttan menningarlegan bakgrunn til að sækja um starfið.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Starfsréttindi í félagsráðgjöf
  • Þekking og reynsla af ráðgjöf við fjölskyldur.
  • Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum, frumkvæði, skipulagshæfni og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Áhugi og reynsla á þverfaglegri teymisvinnu.
  • Góð íslenskukunnátta C1 samkvæmt samevrópskum matsramma
  • Hreint sakavottorð í samræmi við lög, sem og reglur Reykjavíkurborgar
  • Þekking og reynsla af starfi á sviði velferðarþjónustu Reykjavíkurborgar eða öðru sveitarfélagi er kostur. Þekking eða reynsla af því að starfa með fólki af erlendum uppruna er kostur.
Fríðindi í starfi
  • 36 stunda vinnuviku
  • Fjölskylduvænan vinnustað.
  • Sund -og menningarkort Reykjavíkurborgar
Auglýsing birt13. ágúst 2026
Umsóknarfrestur27. ágúst 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Efstaleiti 1, 103 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Félagsráðgjafi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar