
Límtré Vírnet ehf
Límtré Vírnet er íslenskt iðnfyrirtæki og starfsstöðvar þess byggja á áratuga löngum framleiðsluferlum. Starfsfólk okkar er einnig með áratuga starfsreynslu við framleiðslu og sölu á gæðavörum fyrir byggingariðnaðinn á Íslandi.
Starfsstöðvar okkar eru á þremur stöðum á landinu. Höfuðstöðvar okkar eru á Lynghálsi, þar sem innkaupadeild, fjármálastjóri og byggingadeild er starfrækt ásamt afgreiðslu á helstu lagervörum fyrirtækisins. Í Borgarnesi er framleitt valsað stál og ál til klæðninga utanhúss og innanhúss, ásamt framleiðslu á milliveggjastoðum úr stáli.
Í Borgarnesi eru einnig reknar blikksmiðja og járnsmiðja.
Á Flúðum er svo framleiðsla á límtré og steinullareiningum.
Söludeildir fyrirtækisins er starfræktar á Lynghálsi 2 í Reykjavík og á Borgarbraut 74 í Borgarnesi.
Hönnuður á byggingadeild
Vegna aukinna verkefna auglýsir Límtré Vírnet eftir byggingatæknifræðingieða byggingaverkfræðingi til starfa á byggingadeild fyrirtækisins að Lynghálsi 2 í Reykjavik.
Kostur ef umsækjandi getur byrjað sem fyrst
Helstu verkefni og ábyrgð
- Hönnun á límtrésburðarvirki fyrir byggingar og klæðningar
- Deilihönnun og teiknivinna fyrir límtréshús með steinullareiningum
- Þróunarvinna við hús með límtrésbitum og steinullareiningum
- Vinnslu fyrirspurna
Menntunar- og hæfniskröfur
- Byggingatæknifræði B.Sc./Byggingaverkfræði M.Sc.
- Þekking á teikni- og hönnunarforritum
- Hæfni til að vinna sjálfstætt sem og í teymisvinnu
- Skipulögð og öguð vinnubrögð í starfi
- Frumkvæði og faglegur metnaður
- Hæfni í mannlegum samskipum
- Iðnmenntun er kostur
Fríðindi í starfi
- Vinnutími er kl. 8:00–16:00 mánudaga til fimmtudaga og til kl. 15 á föstudögum.
- Framtíðarstarf hjá traustu fyrirtæki
- Fyrirmyndarfyrirtæki ársins hjá VR sl. ár.
- Góður vinnuandi
- Frábært mötuneyti þar sem boðið er upp á morgun- og hádegismat fyrir starfsmenn
Auglýsing birt31. júlí 2026
Umsóknarfrestur24. ágúst 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Lyngháls 2, 110 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
TæknifræðingurVerkfræðingur
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Sérfræðingur á sviði náttúruvár með áherslu á ofanflóð og jarðvá
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið

Ráðgjafi heim
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Physics modelling of thermodynamics and heat transfer
Hydram Dynamics

Verkefnastjóri í framkvæmdadeild
Yrkir eignir ehf.

Forstöðumaður umferðardeildar
Vegagerðin

Verkefnastjóri – stefna og fjárfestingar
Landsnet hf.

Áreiðanleikafræðingur
Norðurál

Skipulags- og byggingarfulltrúi Rangárþings eystra
Rangárþing eystra

Skipuleggjandi viðhalds / Maintenance Planner
Alcoa Fjarðaál

Komdu til liðs við okkur á Andrastaði – vantar fólk í aukavinnu
Andrastaðir

Tækjasérfræðingur – uppsetning, þjónusta og þjálfun
DTE

Field Service Specialist (Service, Build & Enablement)
DTE