Héðinn
Héðinn
Héðinn

Rennismiður

Héðinn hf. leitar að reynslumiklum rennismið í öflugt renniverkstæði fyrirtækisins í Hafnarfirði.

Hjá Héðni starfar öflugt teymi fagfólks sem vinnur að krefjandi og fjölbreyttum verkefnum fyrir sjávarútveg, orkufyrirtæki og stóriðju. Við erum rótgróið en framsækið fyrirtæki með yfir 100 ára reynslu í málmiðnaði og véltækni – og við leggjum metnað í fagmennsku, nákvæmni og lausnamiðaða hugsun.

Renniverkstæði Héðins er vel búið bæði tölvustýrðum og handstýrðum rennibekkjum og fræsivélum. Þar mætast hefðbundin fagkunnátta og nútímaleg tækni í verkefnum sem krefjast nákvæmni, útsjónarsemi og faglegs stolts.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Nýsmíði samkvæmt teikningum
  • Viðgerðir og endurnýjanir íhluta
  • Viðhaldsverkefni fyrir fjölbreyttan viðskiptahóp
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Reynsla af CNC rennibekkjum
  • Sjálfstæð og fagleg vinnubrögð
  • Góð íslenskukunnátta
Fríðindi í starfi
  • Niðurgreiddur morgun- og hádegismatur.
  • Stórglæsilegt starfsmannarými með golf- og skothermi.
  • Líkamsræktaraðstaða og búningsklefar með sturtu. 
  • Öflugt starfsmannafélag og frábær starfsandi.
Auglýsing birt17. febrúar 2026
Umsóknarfrestur27. febrúar 2026
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Gjáhella 4, 221 Hafnarfjörður
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar