

Viltu bætast í hóp framleiðslusviðs Set á Selfossi?
Set leitar að öflugum og jákvæðum einstakling til að bætast í öflugan hóp á framleiðslusviði fyrirtækisins á Selfossi.
Við leitum eftir einstaklingum í dagvinnu sem og vaktavinnu inn í þrjár deildir hjá okkur.
Framleiðslulínur, vaktavinna á virkum dögum - Helstu verkefni:
Fylgjast með keyrslu á framleiðslulínum.
Raða og pakka framleiðsluvörum.
Stórsmíði - dagvinna - helstu verkefni:
Smíði á ýmsum vörum og mannvirkjum úr plasti.
Plastsuða og spegilsuða.
Hentar vel fyrir vandvirkan einstakling með smiðsauga.
Fittings og rörasmíð - dagvinna - Helstu verkefni:
Samsetning á framleiðsluvörum, eins og beygjum og lokum.
Samsetning á rörum fyrir einangrun.
Plastsuða, spegilsuða og freyðing einangrunar.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Frumkvæði og jákvætt viðhorf.
- Þjónustulund.
- Skipulögð og öguð vinnubrögð.
- Ökuréttindi skilyrði.
- Reynsla af sambærilegu starfi kostur en ekki skilyrði.
- J lyftararéttindi kostur en ekki skilyrði.
- Góð öryggiskennd er skilyrði
- Gæðavitund er skilyrði.
Niðurgreiddur hádegismatur
Rússneska
Litháíska
Pólska
Íslenska
Enska










