
Lífland ehf.
Lífland ræktar lýð og land. Þjónusta okkar sýnir ræktarsemi við grunnstoðir mannlífs um allt land. Með fjölbreyttu vöruúrvali og vísindalegum vinnubrögðum sköpum við góðan jarðveg fyrir hverskonar rækt; jarðrækt, búfjárrækt, nautgriparækt og hrossarækt.
Þungamiðjan í starfi okkar er þó ekki síst mannrækt í víðustu merkingu þess orðs. Íslendingar hafa sterka þörf fyrir að komast í snertingu við uppruna sinn og náttúru landsins.
Það gildir einu hver klæðist stígvélunum - stoltur bóndi, frískleg hestakona eða fjölskyldufaðir í sumarhúsi - þau vita hvar þau standa. Lífland gefur þeim þessa jarðtengingu.
Lífland er markaðsdrifið þjónustufyrirtæki sem leggur áherslu á að uppfylla þarfir og óskir viðskiptavina. Starfsemi fyrirtækisins lýtur annars vegar að þjónustu tengdri landbúnaði og tengist hins vegar hestaíþróttum, dýrahaldi, útivist og þjónustu við matvælaiðnaðinn.
Hlutverk Líflands er að bæta árangur viðskiptavina sinna. Við viljum sjá fyrir breytingar á þörfum okkar viðskiptavina og bjóða áhugaverðustu lausnirnar fyrir þá á hverjum tíma fyrir sig.
Lífland rekur tvær verksmiðjur, annars vegar fóðurverksmiðju á Grundartanga og hins vegar kornmyllu í Korngörðum í Reykjavík ásamt því að reka Nesbúegg. Skrifstofur og lager eru staðsett í Brúarvogi, Reykjavík. Verslanir Líflands eru á Lynghálsi, Reykjavík, Borgarbraut Borgarnesi, Grímseyjargötu Akureyri, Ormsvöllum Hvolsvelli, Efstubraut Blönduósi og Austurvegi Selfossi.

Söluráðgjafi tækja
Lífland leitar að öflugum og lausnamiðuðum einstaklingi í fjölbreytt og spennandi verkefni á sölu-og markaðssviði fyrirtækisins. Starfið felur í sér sölu, ráðgjöf og tilboðsgerð til viðskiptavina. Söluráðgjafi tækja heyrir undir framkvæmdastjóra sölu- og markaðssviðs.
Um er að ræða 100% starf og vinnutíminn er 08:00-16:00.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Sala og fagleg ráðgjöf á þeim vöruflokkum sem tilheyra Líflandi
- Framúrskarandi þjónusta til viðskiptavina m.a. með því að þróa lausnir og vöruval sem felur í sér beggja hag
- Tilboðsgerð til viðskiptavina
- Öflun og viðhald viðskiptatengsla
- Áætlunargerð og markmiðasetningu
- Símsvörun
- Önnur tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
- Framúrskarandi þjónustulund og lipurð í samskiptum
- Heiðarleiki, nákvæm vinnubrögð og gagnrýnin hugsun
- Menntun og reynsla sem nýtist í starfi
- Gott frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
- Hæfni til að vinna undir álagi
- Almenn þekking á landbúnaðar- og vinnuvélum telst mikill kostur
- Góð almenn tölvukunnátta
Auglýsing birt10. febrúar 2026
Umsóknarfrestur1. mars 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Brúarvogur 1-3 1R, 104 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)
Sambærileg störf (12)

Starfsmaður í Garðaland - fullt starf
BAUHAUS slhf.

Söluráðgjafi varahluta
Fastus

Verkefnastjóri byggingarframkvæmda og tæknimála / Project Manager Construction & Technical Ops
MýSköpun

Polarn O. Pyret leitar að sölufulltrúa í 80% starf
Polarn O. Pyret

Viltu bætast í hóp framleiðslusviðs Set á Selfossi?
Set ehf. |

Sumarstörf í áhaldahúsi
Borgarbyggð

Meiraprófsbílstjóri /sölumaður
Kjörís ehf

Vélvirki / vélstjóri / bifvélavirki hjá Set Selfossi
Set ehf. |

Við leitum af ráðgjöfum.
Tryggingar og ráðgjöf ehf.

Framtíðarstarf í ker- og steypuskála
Norðurál

Innviðir framtíðarinnar - Ofar leitar að sérfræðingum í gagnaverum
Ofar

Sölumaður / Bílasali
Bílasalan Toppbílar