
Advania
Hjá Advania á Íslandi starfa um 600 sérfræðingar við að einfalda störf viðskiptavina okkar með snjallri nýtingu á upplýsingatækni. Þó við séum sérfræðingar í tækni viljum við veita framúrskarandi þjónustu. Við hlúum að fólkinu okkar og hjálpumst að við að skapa lifandi vinnustað.
Advania á Íslandi er hluti af Advania-samstæðunni sem er meðal umsvifamestu upplýsingatæknifyrirtækja á Norðurlöndum. Samstæðan er með yfir 50 starfsstöðvar í Noregi, Svíþjóð, Danmörku, Finnlandi, Bretlandi og Íslandi. Hjá henni starfa yfir 5000 sérfræðingar í upplýsingatækni.

Ráðgjafi í netöryggi
Viltu hafa áhrif á netöryggi hjá fjölbreyttum hópi viðskiptavina?
Advania leitar að reyndum sérfræðingi í netöryggi í leiðandi ráðgjafarhlutverk þar sem þú styður bæði viðskiptavini og innri teymi með sérfræðiþekkingu á netöryggi og öruggum upplýsingakerfum.
Þú vinnur náið með stefnumótandi teymi Advania í netöryggismálum og átt í nánu samtali við aðra sérfræðinga, öryggis- og tæknistjóra viðskiptavina. Þú tekur þátt í að móta þjónustuframboð
Advania og veitir ráðgjöf sem hefur raunveruleg áhrif á netöryggi hjá fjölbreyttum hópi viðskiptavina. Starfið krefst djúprar tækniþekkingar og hæfni til að miðla flóknum málum á skýran og ráðgefandi hátt.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Leiðandi ráðgjöf og eftirfylgni gagnvart viðskiptavinum.
- Ráðgjöf til innri tekjusviða Advania um öryggi og viðnámsþol upplýsingakerfa.
- Ráðgefandi þjónusta í öryggisvitund og notendafræðslu.
- Umsjón og ráðgjöf varðandi veikleikastjórnun.
- Aðstoð við viðskiptavini við að uppfylla tæknilegar þarfir og kröfur.
- Þátttaka í stefnumótun um örugga notkun gervigreindar.
- Náið samstarf við deild netöryggis og gagnaþróunar á skrifstofu stefnumótunar.
- Náið samstarf við vörustjóra öryggislausna, sölu og sérfræðinga í rekstrarteymum.
- Þátttaka í sýndarteymi sérfræðinga á sviði upplýsingatækniöryggis innan Advania.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólagráða eða sambærileg reynsla sem nýtist í starfi.
- Mikil reynsla af netöryggismálum.
- Þekking á NIST aðferðafræðinni í netöryggi er æskileg.
- Þekking á regluverkum eins og NIS/NIS2, CRA, DORA, AI Act er kostur.
- Þekking á breiðu vöruframboði ólíkra netöryggisvarna.
- Þekking á hönnun og rekstri öruggra tölvukerfa.
- Góð enskukunnátta.
- Framúrskarandi þjónustulund og hæfni í samskiptum.
- Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.
Auglýsing birt31. maí 2026
Umsóknarfrestur12. júní 2026
Tungumálahæfni
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Guðrúnartún 10, 105 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (5)
Sambærileg störf (12)

Distributed Systems Engineer
Fenris Creations

Backend Software Engineer
Asana

Engineering Manager, Development Infrastructure
Asana

Junior Software Engineer
Asana

Business Central ráðgjafi með þekkingu á tollamálum
Advania

Senior Front End Engineer
beqom

Senior Back End Engineer
beqom

Hefur þú gaman af tækni, þjónustu og lausnarleit?
Akraneskaupstaður

Technical Support Engineer
RVX Productions ehf.

Yfirmaður þjónustuvers Stafrænnar heilsu
Heilbrigðisráðuneytið

Hugbúnaðarsérfræðingur á sviði rekstrarlausna
Advania

Ráðgjafi í áhætturáðgjöf Deloitte
Deloitte