
Akraneskaupstaður
Akranes er stærsta sveitarfélag Vesturlands með rúmlega 8.500 íbúa.
Hjá Akraneskaupstað starfa tæplega 800 manns í 20 stofnunum. Bærinn rekur tvo grunnskóla, fjóra leikskóla, frístundastörf, búsetukjarna, miðlæga skrifstofu, tónlistarskóla, bókasafn, slökkvilið og byggðasafn svo fátt eitt sé nefnt. Akranes er framsækið sveitarfélag sem hefur jákvæðni, metnað og víðsýni að leiðarljósi í þjónustu og uppbyggingu sveitarfélagsins.
Akranes er einstaklega fjölskylduvænt bæjarfélag þar sem gott er að búa og ala upp börn. Bærinn er bæði heilsueflandi og barnvænt samfélag og framfylgir stefnu um slíkt. Það sem einkennir Akranes er flatlendi þess og er því mjög þægilegt að ganga og hjóla um bæinn. Auk þess eru möguleikar til útivistar fjölbreyttir og stutt í ósnortna náttúru.

Hefur þú gaman af tækni, þjónustu og lausnarleit?
Akraneskaupstaður leitar að tölvuumsjónarmanni sem vill taka þátt í að tryggja öfluga, örugga og notendavæna upplýsingatækniþjónustu fyrir starfsfólk sveitarfélagsins. Starfið hentar einstaklingi sem hefur góða tæknilega yfirsýn, ríka þjónustulund og ánægju af því að hjálpa öðrum að ná árangri í sínu starfi.
Viðkomandi sinnir almennri notendaþjónustu, rekstri og eftirliti með tölvubúnaði og tekur þátt í að tryggja örugga og skilvirka upplýsingatækniþjónustu fyrir starfsfólk.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Almenn notendaþjónusta og aðstoð vegna tölvubúnaðar, hugbúnaðar og kerfa
- Uppsetning, viðhald og umsjón með tölvum, prenturum, símum og öðrum tæknibúnaði
- Umsjón með aðgangsmálum, notendareikningum og grunnstillingum kerfa
- Eftirlit með virkni búnaðar og þátttaka í úrlausn tæknilegra vandamála
- Skráning, eftirfylgni og úrvinnsla þjónustubeiðna
- Þátttaka í innleiðingu nýrra lausna og umbótum í upplýsingatækni
- Samskipti við birgja og þjónustuaðila eftir þörfum
Menntunar- og hæfniskröfur
- Menntun á sviði upplýsingatækni, diplómanám í kerfisstjórnun eða sambærilegt
- Reynsla í kerfisrekstri, netrekstri útstöðva og mobile-device umsjón
- Reynsla af notendaþjónustu og almennri bilanagreiningu er kostur
- Þekking á Microsoft-umhverfi, tölvubúnaði, netkerfum og almennum hugbúnaðarlausnum
- Góð íslenskukunnátta og hæfni til að miðla upplýsingum á skýran hátt
- Rík þjónustulund, jákvætt viðmót og hæfni í mannlegum samskiptum
- Sjálfstæði, frumkvæði og skipulögð vinnubrögð
- Hæfni til að vinna undir álagi og forgangsraða verkefnum
Auglýsing birt26. maí 2026
Umsóknarfrestur8. júní 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Dalbraut 4, 300 Akranes
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (2)




