

Sérfræðingur í ljósmyndun og myndbandsgerð
Ertu skapandi og drífandi einstaklingur sem hefur næmt auga fyrir smáatriðum og kannt listina við að segja áhrifaríkar sögur?
Við leitum að öflugum liðsfélaga í markaðsteymi Advania sem hefur reynslu af ljósmyndun og myndbandsgerð. Hjá okkur færðu tækifæri til að vinna með fjölbreytt efni fyrir stafræna miðla, viðburði og markaðsherferðir. Þú munt vinna náið með markaðsteymi og samskiptastjóra félagsins að framleiðslu efnis fyrir viðskiptavinasögur, ráðstefnur, viðburði, auglýsingar og annað kynningarefni sem styrkir vörumerki og sýnileika Advania.
Ef þú hefur gott auga fyrir myndmáli og frásögn, þrífst vel í kviku starfsumhverfi og hefur metnað fyrir vönduðum vinnubrögðum, viljum við endilega heyra frá þér!
Helstu verkefni og ábyrgð
- Þátttaka í hugmyndavinnu, myndataka og vinna efni fyrir vef, samfélagsmiðla, viðburði og annað markaðsefni Advania
- Skipuleggja, taka upp og klippa myndbönd fyrir herferðir, viðburði og stafræna miðla
- Sjá um eftirvinnslu og aðlögun efnis fyrir mismunandi miðla og birtingarform
- Framleiða efni fyrir viðskiptavinasögur, ráðstefnur, kynningar og aðrar markaðsaðgerðir
- Tæknilegt utanumhald á stúdíói Advania og framleiðslubúnaði
- Stuðla að þróun og nýjungum í efnisframleiðslu
Hæfniskröfur
- Reynsla af ljósmyndun, kvikmyndatöku og myndbandsvinnslu
- Góð þekking á upptökubúnaði og færni í helstu myndvinnslu- og klippiforritum
- Reynsla af eftirvinnslu og klippingu myndbandsefnis
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
- Hugmyndaauðgi og auga fyrir smáatriðum
- Góð samskiptafærni og hæfni til að vinna í teymi
- Þekking á hljóðvinnslu og stúdíóvinnu eða áhugi fyrir því að læra
Umsækjendur eru hvattir til að skila inn sýnishornum eða verkefnamöppu með umsókn.
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Um markaðsteymi Advania
Í markaðsteymi Advania býr fjölbreytt reynsla, ólíkir styrkleikar og hæfileikar til að klára málin alla leið. Við rekum fjölnota stúdíó, skipuleggjum markaðsherferðir, framleiðum auglýsingar og markaðsefni, höldum stóra og smáa viðburði, sinnum greiningu og veitum ráðgjöf, svo eitthvað sé nefnt. Teymið samanstendur af jákvæðum, öflugum og skapandi einstaklingum sem leggja mikinn metnað í skila öllum verkum 100%.
Hvers vegna Advania?
Hjá Advania færðu að taka þátt í lifandi og metnaðarfullum verkefnum, vinna með frábæru fólki og hafa raunveruleg áhrif á hvernig fyrirtækið birtist bæði inn á við og út á við. Við leggjum áherslu á sveigjanleika, öfluga teymismenningu og faglegan vöxt.
Íslenska
Enska