Akureyri
Akureyri
Akureyri

Plastiðjan Bjarg-Iðjulundur: Verkstjóri í vélasal

Plastiðjan Bjarg-Iðjulundur (PBI) óskar eftir að ráða verkstjóra í vélasal í ótímabundið starf. Um er að ræða 100% starfshlutfall í dagvinnu.

Æskilegt er að umsækjandi geti hafið störf 1. september 2025.

Á Plastiðjunni Bjargi - Iðjulundi (PBI) fer fram starfsþjálfun og vinna fyrir fatlað fólk. PBI er vinnustaður fyrir fólk sem vegna fötlunar eða af öðrum ástæðum er með skerta starfsgetu. PBI starfar skv. lögum um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir nr. 38/2018. Þar er stunduð iðnaðarframleiðsla, m.a. framleiðsla á raflagnaefni, kertum, skiltum og textílvörum. Unnið er eftir hugmyndafræði um Þjónandi leiðsögn (e.Gentle Teaching) og valdeflingu (e. Empowerment).

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Ábyrgð á vélum, tækjum og vörum.
  • Viðhald búnaðar og tækja.
  • Dagleg verkstjórn og framleiðslustýring.
  • Gætir að öryggi starfsmanna við vinnu á vélum.
  • Kennsla og leiðsögn í verkefnum og við framleiðslu.
  • Verkstjórn og aðstoð eftir þörfum á vinnusvæði PBI.
  • Ábyrgð á gæðum framleiðslu og þjónustu við viðskiptavini.
  • Mótun gæðaferla og eftirfylgd vegna þeirra.
  • Vinnur að vöruþróun og fylgist með lagerstöðu.
  • Sjá til þess að rétt magn af framleiðsluvöru sé til á lager miðað við áætlaða sölu. 
  • Tekur til vöru sendingar.
  • Að veita ávallt bestu þjónustu.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Iðnmenntun s.s. rafvirkjun eða bifvélavirkjun eða önnur sambærileg menntun sem nýtist í starfi.
  • Reynsla af verkstjórn æskileg.
  • Reynsla af  iðnaðarframleiðslu og/eða handverki æskileg.
  • Reynsla af starfi með fötluðum er kostur.
  • Mikilvægir eiginleikar eru sveigjanleiki, samviskusemi, lipurð og jákvætt viðhorf til fólks og vinnu sinnar. 
  • Við sækjumst eftir starfsfólki sem hefur góða færni í samskiptum og áhuga á að starfa með fólki.
  • Góð íslenskukunnátta er skilyrði.
  • Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu.
Auglýsing birt12. maí 2025
Umsóknarfrestur21. maí 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Geislagata 9, 600 Akureyri
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.BifvélavirkjunPathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.HandlagniPathCreated with Sketch.HeiðarleikiPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.RafvirkjunPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.SveigjanleikiPathCreated with Sketch.VélvirkjunPathCreated with Sketch.ÞjónustulundPathCreated with Sketch.Þolinmæði
Starfsgreinar
Starfsmerkingar