VÍS
VÍS
VÍS

Tjónaskoðunarmaður

Ert þú bifreiðasmiður, bifvélavirki og eða bílamálari? Þá gætum við verið að leita að þér.

Við leitum að tjónaskoðunarmanni sem mun tilheyra öflugum hópi starfsfólks munatjóna. Starfið er fjölbreytt og krefjandi og hentar einstaklingum sem er reynslumikið fagfólk í sinni iðngrein.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Þjónusta viðskiptavini við uppgjör á tjónum á ökutækjum og vinnuvélum.
  • Meta tjónaskoðanir og kostnaðaráætlanir frá þjónustuaðilum.
  • Fylgja eftir viðgerðum og uppgjöri á ökutækjum.
  • Uppgjör tjónabóta til viðskiptavina fyrir ökutæki eða vinnuvélar.
  • Samskipti og upplýsingagjöf til verkstæða, viðskiptavina og samstarfsmanna.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Sveinspróf í bifreiðasmíði, bifvélavirkjun og/eða bílamálun skilyrði, meistararéttindi kostur.
  • Mikil alhliða reynsla af viðgerðum á ökutækjum skilyrði. Kostur að hafa reynslu af viðgerðum á stærri ökutækjum.
  • Góð almenn tölvukunnátta.
  • Frumkvæði og sjálfstæði í starfi.
  • Rík þjónustulund og samskiptafærni.

Tjónaskoðun fer að miklu leyti fram í gegnum Cabas tjónamatskerfið og því er reynsla af því kerfi kostur.

Fríðindi í starfi
  • Framúrskarandi vinnustað með einstaka vinnustaðamenningu 

  • Frábært mötuneyti

  • Fyrirmyndarfyrirtæki með áherslu á jafnrétti  

  • Nýsköpunarumhverfi því við elskum hugrekki  

  • Fyrirtæki sem hugsar til framtíðar með því að leggja áherslu á sjálfbærni  

  • Tækifæri til þess að vaxa og dafna bæði í lífi og starfi 

Auglýsing birt9. maí 2025
Umsóknarfrestur18. maí 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Ármúli 3, 108 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar