Marel
Marel
Marel

Liðsfélagi í hóp rafvirkja - rafvirkjanemar

JBT Marel leitar að kraftmiklum liðsfélaga til starfa í hóp rafvirkja við samsetningu á fjölbreyttum tækjabúnaði. Unnið er í sjálfstæðum teymum sem samanstanda af 10-20 einstaklingum á öllum aldri og kynjum og bera þau sameiginlega ábyrgð á að ljúka framleiðslu hverrar vöru. Allir nýir starfsmenn fá þjálfun. Við bjóðum m.a. upp á fyrsta flokks vinnuumhverfi, fjölskylduvænan vinnutíma, frábært mötuneyti með heitum mat í hádeginu og aðstöðu til líkamsræktar.

Framleiðsla JBT Marel í Garðabæ sérhæfir sig í stuðningi við vöruþróun og framleiðslu á sérhönnuðum verkefnum fyrir okkar viðskiptavini.

Starfið felur í sér:

· Víringar á rafmagnstöflum og tengingar á búnaði

· Samsetningu fjölbreyttra tækja og búnaðar

· Stillingar, prófanir og gæðaúttektir ásamt frágangi fyrir útflutning

Hæfniskröfur:

· Nemi í rafvirkjun (Grunnnámi lokið)

· Góð íslenskukunnátta í töluðu og rituðu máli er skilyrði

· Tölvuþekking og áhugi á tækniþróun

· Góð færni í samskiptum og áhugi á teymisvinnu

· Samviskusemi, metnaður og góð öryggisvitund

· Jákvæðni, almenn lífsgleði og lausnamiðuð hugsun

· Áhugi á umbótastarfi (stöðugum umbótum)

· Áhugi á að vaxa og læra

Áhugasamir einstaklingar án tillits til kyns eru hvattir til að sækja um starfið. Nánari upplýsingar um starfið veitir Heiðrún Hreiðarsdóttir, [email protected].

Umsóknarfrestur er til og með 1. júní 2025. Sótt er um starfið á heimasíðu Marel (www.marel.com).

Auglýsing birt12. maí 2025
Umsóknarfrestur1. júní 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Austurhraun 9, 210 Garðabær
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.SamviskusemiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.Teymisvinna
Starfsgreinar
Starfsmerkingar